Blómadropar
Blómadropar eru sérunnar blöndur, unnar úr blómstrum jurta, en hlutverk þeirra er að hafa áhrif á tilfinningar, huga og sál. Blómadropar hafa verið notaðir allt frá árinu 1910 og var aðferðin þróuð af Dr. Edward Bach, sem var meina- og gerlafræðingur. Hann var ósáttur við hefðbundnar lækningar og snéri sér að smáskammtalækningum en þróaði upp úr þeim blómalyf, sem byggðust á 38 villtum blómum, s...
Nánar
Grasalækningar
Grasalækningar hafa verið stundaðar um allan heim frá örófi alda. Hér á landi má telja víst að landnámsmenn hafi komið með þekkinguna með sér þegar þeir námu Ísland en grasalækningar koma bæði við sögu í íslenskum fornsögum svo og í mörgum íslenskum þjóðsögum. Í grasalækningum eru seyði, te, stílar, smyrsl eða áburður unnið úr plöntum. Í þessum fræðum eru ekki bara einangruð virk efni jurtarinna...
Nánar
Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð
Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð er mild meðferð sem hefur sterk áhrif. Hún byggir á léttri snertingu en markmiðið er að meta og meðhöndla himnurnar sem umlykja miðtaugakerfið og/eða losa út orkumein. Einnig felst meðhöndlunin í að losa um spennu, samgróninga, bólgur og aðrar hindranir hvar sem er í líkamanum. Styrkur meðferðarinnar er m.a. að unnið er frá mænu og út á við. Meðferðin stuðlar...
Nánar
Hómópatía
Hómópatíu má rekja rúm 200 ár aftur í tímann þegar farið var að kanna áhrif lyfja, sem þá voru notuð gegn sjúkdómum, á fríska einstaklinga - ekki veika. Niðurstaðan var sú að lyf sem framkallar ákveðin einkenni í heilbrigðu fólki var rétta lyfið til að taka þegar sömu einkenni komu fram af völdum sjúkdóms. Einnig kom í ljós að lækningamáttur smáskammtalyfja hafði ekkert með styrk þeirra að gera. Í...
Nánar
Ilmolíumeðferð
Ilmolíumeðferð var notuð fyrir 5000 árum í Egyptalandi og á rætur að rekja til elstu lækningahefða mannkyns en ilmkjarnaolíur voru notaðar í einhverri mynd til lækninga í flestum fornum samfélögum. Eftir síðari heimstyrjöldina hafa ilmolíur verið notaðar á spítölum í Frakklandi, Þýskalandi og Bretlandi samhliða hefðbundnum lækningaaðferðum. Ilmkjarnaolíur eru hreinir ilmkjarnar jurta sem eru unn...
Nánar
Kírópraktík
Kírópraktík hefur verið stunduð í þúsundir ára samkvæmt fornum heimildum m.a. frá Kína, Egyptalandi og Grikklandi. Í kírópraktík er talið að röskun á beinagrindinni gæti orsakað þrýsting á taugar sem eykur eða dregur úr boðflutningshæfni líkamans. Slíkt veldur of mikilli eða ónógri starfsemi og afleiðingin er það sem við þekkjum sem sjúkdómar. Kírópraktor skoðar stoðkerfi líkamans, hreyfingu l...
Nánar
Lithimnugreining
Í lithimnugreiningu er lesið í lithimnu augans en einnig er hvítan í auganu skoðuð en með þessu er hægt að fá ítarlega mynd af heilsufari einstaklings. Lithimnugreining er ekki forspá en hægt er að sjá forstigseinkenni í vefjum og líffærum sem geta leitt til langtímaveikinda ef ekkert er að gert. Lithimnan hefur verið kortlögð þar sem líffærin, líkamskerfin og svæði líkamans koma fram, svo grein...
Nánar
Nálastunga
Nálastungumeðferð er ein elsta þekkta læknisaðferðin og er upprunnin í Kína fyrir meira en fimm þúsund árum. Meðferðin byggir á því að hárfínum nálum er stungið í vissa punkta á líkamanum og/eða að jurtir eru brenndar á punktunum. Nálunum er stungið á sérstakan hátt í ákveðna punkta til að framkalla mismunandi áhrif – allt eftir því hvort verið er að auka orkuflæði eða draga úr orkuflæði brautar...
Nánar
NLP (Neuro Lingvistisk Programmering)
Taugar/skynfæri, tungumál/líkamstjáning, forrit/hugsanaferli/hegðun. Lesið er út frá þessum forsendum í viðtölum og fundið út það líkan sem svo leiðir að lausnarmiðaðri aðferð, á meðvitaðan hátt. Þetta fjallar um athafnamynstrið og þau markmið sem sett eru. Hvað – hvers vegna – hvernig? NLP er samskiptatækni til að breyta hugsunum okkar á jákvæðan hátt, til að ná fram vonum og væntingum að set...
Nánar
Osteópatía
Osteópatía er líkamsmeðhöndlunarkerfi sem upprunnið er í Bandaríkjunum árið 1874 og er 4-5 ára háskólanám sem gefur B.Sc. (honors) gráðu. Það er skilningur osteópata að með því að beita viðeigandi og vandlega framkvæmdri líkamsmeðhöndlun á utanverðan líkamann náist fram breyting til batnaðar að innan. Til að gera sér grein fyrir starfi osteópata er hægt að segja að hann starfi líkt og sjúkranudd...
Nánar
Regndropameðferð
Regndropameðferð dregur nafn sitt af því að 10 mismunandi ilmolíur eru látnar falla í 15 sentímetra hæð ofan á hrygginn þannig að nuddþeginn upplifir þetta eins og að regndropar falli mjúklega á bakið á honum. Regndropameðferð er meðferð til að örva taugaboð líkamans í þeim tilgangi að hreinsa og hlaða orkustöðvarnar. Nuddari lætur olíurnar 10 falla í 15 sentímetra hæð ofan á hrygginn í ákveðinn...
Nánar
Þrýstipunktameðferð
Shiatsu eða þrýstipunktameðferð hefur verið notuð í aldaraðir en shiatsu er japanska og þýðir ,,að þrýsta fingri á“. Shiatsu má upprunalega rekja til Kína en eins og margar austurlenskar aðferðir hefur hún þróast sjálfstætt. Shiatsu, eins og hún þekkist í dag, má þó rekja til Japans. Meðferðin byggir á því að örva lífsorkuna með því að þrýsta á ákveðna punkta á líkamanum en þeir eru staðsettir á...
Nánar
Trager
Trager aðferðin - Hvað er það? Trager aðferðin er einstök aðferð, nokkurs konar “líkams-kennsla” sem felur í sér sérstaklega mjúkar og mildar hreyfingar á útlimum, liðamótum og vöðvum. Hún felur einnig í sér kennslu á léttum hreyfingum sem auka á meðvitund um líkamann og bæta hreyfanleika hans. Markmiðið með meðferðinni er að senda undirmeðvitundinni skilaboð um að hreyfing geti v...
Nánar
Vöðva- og hreyfifræði
Vöðva- og hreyfifræði eða kinesiologi er meðhöndlunarform sem byggir á vöðvaprófun til að finna og leiðrétta skert jafnvægi í vöðvastarfseminni og annarri líkamsstarfsemi. Það er leitast við að jafna orkuflæði líkamans þar sem stíflur hafa myndast af andlegum eða líkamlegum orsökum. Meðferðin miðar að því að jafna orkuna inn á svæði líkamans og inn á líffærin. Leitast er við að jafna orkuflæði l...
Nánar