Grasalækningar hafa verið stundaðar um allan heim frá örófi alda. Hér á landi má telja víst að landnámsmenn hafi komið með þekkinguna með sér þegar þeir námu Ísland en grasalækningar koma bæði við sögu í íslenskum fornsögum svo og í mörgum íslenskum þjóðsögum.

Í grasalækningum eru seyði, te, stílar, smyrsl eða áburður unnið úr plöntum. Í þessum fræðum eru ekki bara einangruð virk efni jurtarinnar notuð, þ.e. þau sem hafa sterkustu áhrifin, heldur ákveðnir hlutar jurtarinnar í heild sinni, þar sem hin fjölþættu efni hennar hafa víðtæk áhrif á allan líkamann.

Grasalæknar blanda alltaf jurtablöndur fyrir hvern einstakan sjúkling enda er markmiðið ekki eingöngu að vinna á sjúkdómseinkennunum heldur að bæta heilsu sjúklingsins almennt.

Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17