Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð

Höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð er mild meðferð sem hefur sterk áhrif. Hún byggir á léttri snertingu en markmiðið er að meta og meðhöndla himnurnar sem umlykja miðtaugakerfið og/eða losa út orkumein. Einnig felst meðhöndlunin í að losa um spennu, samgróninga, bólgur og aðrar hindranir hvar sem er í líkamanum.

Styrkur meðferðarinnar er m.a. að unnið er frá mænu og út á við. Meðferðin stuðlar að því auka getu líkamans til að efla starfsemi miðtaugakerfisins, minnka neikvæðar afleiðingar streitu, efla almennt heilsufar og aka viðnám gegn sjúkdómum.

Meðhöndlari leitast við að finna þau svæði líkamans þar sem hömlur, þrýstingur eða spenna eru til staðar. Þessir þættir hindra gjarnan eðlilegt flæði í kerfinu og hafa því áhrif á starfsemi líffæra, vöðva, tauga, æða og líkamsvefja.
Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17