Kírópraktík hefur verið stunduð í þúsundir ára samkvæmt fornum heimildum m.a. frá Kína, Egyptalandi og Grikklandi.
Í kírópraktík er talið að röskun á beinagrindinni gæti orsakað þrýsting á taugar sem eykur eða dregur úr boðflutningshæfni líkamans. Slíkt veldur of mikilli eða ónógri starfsemi og afleiðingin er það sem við þekkjum sem sjúkdómar.
Kírópraktor skoðar stoðkerfi líkamans, hreyfingu liðamóta og starfsemi vöðva í tengslum við taugakerfið. Athuga þarf hvort hryggjarliðir hreyfist eðlilega og hvort þeir sitji í réttri stöðu svo ekkert hindri flæði frá heila og um líkamann. Stundum skorðast ákveðnir hryggjarliðir á röngum stöðum þannig að þeir hreyfast ekki, þrengja að taugum og trufla boð þeirra og það orsakar vandamál. Hlutverk kírópraktorsins er að fá hryggjarliðina til að sitja rétt þannig að líkaminn komist í þá stöðu að geta hjálpað sér sjálfur að ná fullum bata.