Taugar/skynfæri, tungumál/líkamstjáning, forrit/hugsanaferli/hegðun.
Lesið er út frá þessum forsendum í viðtölum og fundið út það líkan sem svo leiðir að lausnarmiðaðri aðferð, á meðvitaðan hátt. Þetta fjallar um athafnamynstrið og þau markmið sem sett eru.
Hvað – hvers vegna – hvernig? NLP er samskiptatækni til að breyta hugsunum okkar á jákvæðan hátt, til að ná fram vonum og væntingum að settu marki.
Richard Bandler sem stundaði nám í sálfræði og John Grinder málvísindamaður eru hugmyndasmiðir þessarar frábæru tækni sem NLP er. Árið 1972 hófu þeir að safna saman aðferðum færustu og mest framúrskarandi einstaklinga, hvers á sínu sviði og þróuðu NLP út frá því ( hermdu eftir þeim). Það sem sérstakt er við NLP er að með þessum kennslufræðum er notuð víðtæk þekking, hvernig meðvitað er notað ómeðvitað mál hugans til að skapa jákvæðar breytingar í lífinu.
Helstu aðferðir. Tímalínan (fortíð-nútíð-framtíð), atferlisæfingar, dáleiðsla, djúpslökun, verkefni og tækniæfingar, hugræn atferlismótun og samtalstækni.
Hvenær á NLP ráðgjöf við? Þetta er aðferðir sem allir geta haft gagn af, til að styrkja andlegt og líkamlegt heilbrigði og einfaldlega að ná meiri persónulegum árangri.
Einstaklingsmiðuð markmið við:
* Lélegri sjálfsímynd / sjálfstrausti.
* Kvíða og fælni.
* Meðvirkni.
* Verkjakvíða.
* Fíkn og offitu.
* Þunglyndi / meðgöngu- og fæðingarþunglyndi.
Einnig til:
...að styrkja tilfinningagreind og tjáskipti.
...að ná og viðhalda sjálfsöryggi, innri ró og slökun.
...að setja sér markmið og ná lífsleikni.
Yfirleitt nægja 4-6 skipti með góðum árangri. Með breyttu sjónarhorni næst oft mikil breyting.
Katrín Erla Kjartansdóttir
Heilsubrúin Bæjarlind 12 Kópavogi
www.heilsubruin.is &
www.nlp.is