Osteópatía er líkamsmeðhöndlunarkerfi sem upprunnið er í Bandaríkjunum árið 1874 og er 4-5 ára háskólanám sem gefur B.Sc. (honors) gráðu.
Það er skilningur osteópata að með því að beita viðeigandi og vandlega framkvæmdri líkamsmeðhöndlun á utanverðan líkamann náist fram breyting til batnaðar að innan.
Til að gera sér grein fyrir starfi osteópata er hægt að segja að hann starfi líkt og sjúkranuddari, hnykkjari og greiningarþátturinn úr bæklunarlækningum ásamt fleiru sett undir sama hatt.

Hvernig meðhöndlar osteópati?
Osteópati meðhöndlar svo til einungis með því að beita höndum á liðamót og mjúkvefi viðskiptavinarins með það í huga að endurheimta fyrra heilbrigði, blóðflæði eða óhindruð taugaboð. Til þess eru notaðar margs konar aðferðir svo sem nudd, liðteygjur, vefja- og vöðvameðferð og hnykkingar auk fjölda annarra. Það eru einmitt þessar fjölbreyttu aðferðir við greiningu og meðhöndlun sem gera það vert að reyna osteópatíu þótt sjúkraþjálfun eða aðrar aðferðir hafi ekki ráðið bót á vandamálinu.
Einnig gefur osteópati ráð um æfingar og breytingar á starfsháttum ef við á til að flýta fyrir árangri.
Taka skal fram að ekki er skilyrði að röntgenmyndataka áður en hnykkir eru framkvæmdir samkvæmt fyrirmælum osteópata- og hnykkjarasamtaka í heiminum, en þau hafa ráðlagt gegn tilefnislausum röntgenmyndatökum og að byggja meðferð sína á þeim.

http://www.amerchiro.org/media/record/askjeeves.shtml  
http://www.ccachiro.org  

Hverjum hentar osteópatía?
Osteópatía getur hjálpað við flest þau vandamál sem stafa frá lið- og vöðvakerfi líkamans. Nokkur dæmi um það eru:
  • Bakverkir, með eða án leiðandi verkja.
  • Hálsverkir
  • Verkur eða stífleiki í liðamótum (t.d. öxlum, mjöðmum, olnbogum og hnjám)
  • Gigtarverkir og vefjagigt
  • Íþróttameiðsl
  • Leiðandi verkir út í hendur eða fætur
  • Höfuðverkir, svimi og suð í eyrum, og fleira ef upptök eru frá stoðkerfi
  • Bráða sem króníska verki

Osteópatía er fyrir unga sem aldna, íþrótta- og skrifstofufólk.

Af hverju að velja osteópata?
Vegna þess að osteópati leggur traustan grunn að árangri með ítarlegri greiningu á fyrirliggjandi vandamáli. Greiningunni er fylgt eftir með heildrænni meðferð þar sem notast er við fjölbreyttar aðferðir til að ná hámarks árangri. Með þessu móti næst oft árangur þótt aðrar meðhöndlanir eins og t.d. sjúkraþjálfun og nudd hafi ekki virkað sem skyldi.
Osteópatar eru sérmenntaðir í að leysa stoðkerfa-vandamál og eru löggild heilbrigðisstétt samkvæmt reglugerð 229/2005

Hvað fer fram í tímanum?



Haraldur Magnússon
Osteópati B.Sc. (hons)
NST Þerapisti
CFT ISSA
Golf Biomechanic
Body Intelligence Concept

Heilsumiðstöðin Heilsuhvoll
Borgartúni 33 Rvík.
Sími: 841-7000

Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17