Trager aðferðin - Hvað er það?
Trager aðferðin er einstök aðferð, nokkurs konar “líkams-kennsla”
sem felur í sér sérstaklega mjúkar og mildar hreyfingar á útlimum, liðamótum og vöðvum. Hún felur einnig í sér kennslu á léttum hreyfingum sem auka á meðvitund um líkamann og bæta hreyfanleika hans.
Markmiðið með meðferðinni er að senda undirmeðvitundinni skilaboð um að hreyfing geti verið áreynslulaus. Trager aðferðin hefur þótt sérstaklega áhrifarík til að komast fyrir langvarandi tauga- og vöðvatengd vandamál svo sem bak- og hálsverki en einnig streitutengt ástand eins og t.d. höfuðverki.
Trager aðferðin var þróuð af Dr. Milton Trager (1908-1997) nánast fyrir slysni. Sem ungur maður ólst Trager upp í Miami og hafði hann lengi stundað fimleika og dans og fór síðar að stunda hnefaleika. Eftir hnefaleikaæfingar sínar fékk hann oft nudd hjá þjálfara sínum en dag einn bauðst Trager til að “nudda” þjálfarann sinn, sem honum þótti þreytulegur, í stað þess að þiggja af honum nudd. Þjálfaranum þótti meðferðin hreint út sagt ótrúleg og eftir hana fór Trager heim prófaði hið sama á föður sínum sem þjáðist af krónískri settaugabólgu. Hann kenndi sér svo einskins meins eftir tvær meðferðir hjá Trager.
Þessar upplifanir virkuðu hvetjandi fyrir Trager sem fór að prófa sig áfram og meðhöndlaði fólk sem þjáðist af ýmsum kvillum, allt frá bakverkjum til lömunarveiki. Hann varð síðar sjúkraþjálfari og hélt áfram að þróa og bæta aðferðina sína. Á fimmtugsaldri lærði Trager til læknis og þegar hann var nálægt sjötugu fór hann að kenna öðrum aðferðina. Árið 1980 var Trager Stofnunin sett á laggirnar í Will Valley í Californiu og Trager hélt áfram að kenna aðferðina bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu allt til dauðadags árið 1997.
Í dag er Trager Stofnunin eina alþjóðlega stofnunin sem veitir réttindi í Trager aðferðinni en námskeið eru haldin víða um heim. Í dag eru um 2000 Trager meðferðaraðilar í Bandaríkjunum, Kanada, Evrópu, Ísrael, Afríku, Ástralíu og Japan.
Hvernig virkar Trager aðferðin? Trager meðferð er byggð á þeirri kenningu að óþægindi, verkir og minnkuð hreyfigeta séu líkamleg einkenni uppsafnaðrar spennu. Þessi spenna getur til að mynda hafa orsakast af áfalli, veikri líkamsgerð, ótta, tilfinningalegum stíflum og/eða streitu. Talið er að tilfinningin um léttleika, opnun og frið sem Trager aðferðin kallar fram endurhljómi um taugakerfi líkamans. Þetta léttir ekki eingöngu á spennu heldur nær einnig til undirmeðvitundarinnar og breytir andlegri og líkamlegri upplifun af hreyfingu yfir í þægindi og ánægju í stað óþæginda og verkja.
Trager meðferðin fer fram á nuddbekk en einnig eru notaðar einfaldar hreyfingar sem hægt er að halda áfram að gera eftir að heim er komið. Þær eru svokallaðar Mentastics (mental gymnastics) hreyfingar og eru ætlaðar til að draga úr spennu og auka á hreyfigetu líkamans. Ólíkt flestum öðrum æfingum sem eru oftast ætlaðar til að auka styrk og þol er markmiðið með Mentastics að upplifa slökun í líkama og huga.
Við hverju máttu búast? Við fyrstu meðferðina mun Trager meðferðaraðilinn spyrja út í heilsufarssögu þína og kynna sér þau líkamlegu vandamál sem þú ef til vill upplifir á þeirri stundu. Einnig mun meðferðaraðilinn ef til vill spyrja út í hvernig þér líður andlega þar sem hluti af meðferðinni er að hjálpa þér að tengja á milli hugarástands þíns og líkamlegra vandamála.
Í þeim hluta sem unnið er á bekk liggur þú á nuddbekk og til að geta einbeitt sér betur að þér fer meðferðaraðilinn í svokallaða “tengingu” (e. hook-up) svo hann eigi auðveldara með að finna svæði þar sem spenna er í líkama þínum og einnig til að finna betur viðbrögð þín við meðferðinni.
Samkvæmt kenningum Dr. Trager er rósemi og róandi “aðferð” meðferðaraðilans ekki minna mikilvæg en tæknin sjálf. Engar olíur eða smyrsl eru notuð. Meðferðaraðilinn hreyfir vöðva þína á taktfastan og léttan máta, lengir þá og styttir, beygir, rúllar og strýkur þá. Hreyfingarnar eru aldrei þvingaðar og þú ættir ekki að finna til neins sársauka. Þú ættir einnig að finna til djúprar endurnærandi slökunar.