Vöðva- og hreyfifræði eða kinesiologi er meðhöndlunarform sem byggir á vöðvaprófun til að finna og leiðrétta skert jafnvægi í vöðvastarfseminni og annarri líkamsstarfsemi. Það er leitast við að jafna orkuflæði líkamans þar sem stíflur hafa myndast af andlegum eða líkamlegum orsökum. Meðferðin miðar að því að jafna orkuna inn á svæði líkamans og inn á líffærin.
Leitast er við að jafna orkuflæði líkamans en til þess eru notuð vöðvapróf sem sýna ef ójafnvægi er í orkubrautakerfum líkamans. Með þessum vöðvaprófum er hægt að finna út hvaða vöðva og hvaða líffæri vantar orku.