Gildi þess að hreyfa sig verður seint vanmetið. Sérfræðingar mæla með a.m.k. 30 mínútna hreyfingu daglega (sumir tala um að það sé nóg að hreyfa sig 5 daga vikunnar). Best er þegar hreyfingin verður hluti af hinu daglega lífi – hvort sem það er að hjóla eða ganga í og úr vinnu eða að fara alltaf út að ganga á sama tíma. Rannsóknir sýna að sé það gert eykst orkan og þolið, líkamsfita minnkar, vöðvar styrkjast og síðast en ekki síst getur það haft jákvæð áhrif á geðið, því að þeir sem stunda enga hreyfingu eru líklegri til að verða þunglyndir en þeir sem hreyfa sig reglulega.

Þeir sem ganga reglulega í náttúrunni þekkja kraftinn sem sækja má í þessa orku uppsprettu sem náttúran er. Það er sama hvort gengið er meðfram sjónum, uppi á fjöllum, á heiðum eða innan borgar- og bæjarmarkanna - alls staðar er náttúran söm við sig – kraftmikil – heillandi og gefandi. Sá sem nýtur þeirra forréttinda að geta komist í tæri við ómengaða íslenska náttúru ætti ekki að láta það fram hjá sér fara.

Af hverju ætti maður að hreyfa sig?
  • Það minnkar líkurnar á hjarta- og æðasjúkdómum.
  • Það styrkir ónæmiskerfið.
  • Það minnkar líkurnar á að fá sykursýki.
  • Það lækkar blóðþrýstinginn hjá þeim sem þjást af of háum.
  • Það minnkar líkurnar á að fá of háan blóðþrýsting.
  • Það hjálpar til við að byggja upp sterk bein, vöðva og sinar.
  • Það linar þunglyndi og kvíða.
  • Það bætir andlega og félagslega líðan.
  • Það hjálpar til við að hafa stjórn á þyngdinni.
  • Það er auðvelt.
  • Það hentar öllum.
  • Það er gaman.
Sjá allt

Jóga

Jóga er stundað í þeim tilgangi að auka heilbrigði og andlegan þroska einstaklingsins. Jógaástundun hjálpar til við að ná fullri líkamlegri, andlegri og huglægri heilsu og halda henni. Einnig eykur hún þekkingu manneskjunnar á sjálfri sér og þörfum líkama og hugar. Í jógafræðum er sagt að sá, sem er sjálfum sér nógur, sé heilbrigður og laus við þá sjúkdóma sem streita og slæmar lífsvenjur leiða ti...

Nánar

Qi gong

Qi gong, sem þýðir leiðin að lífsorku, eru ævafornar kínverskar lífsorkuæfingar. Markmiðið með því að stunda qi gong er að efla hugarafl, anda, efni, líkama og sál en æfingarnar hjálpa mönnum við einbeitingu og að auka andlegt úthald. Í qi gong er sagt að lífsorkan komist vel af án manneskjunnar en manneskjan komist ekki af án lífsorkunnar. Æfingarnar eiga að efla og styrkja kjarnann í hverjum o...

Nánar

Rope Yoga

Iðkun Rope Yoga leiðir af sér aukinn styrk í kvið, heldur líkamsþyngd í skefjum, eykur orku og þol. RopeYoga skapar einnig meðvitund um þær andlegu uppsprettur sem í einstaklingnum búa, raunverulega upplifun á "núinu" og því lífi sem hann velur að lifa hverju sinni. Það gefur iðkandanum færi á að vera farvegur breytinga sem leiða til djúpstæðari vellíðunar, persónulegrar velgengni og auðlegðar. ...

Nánar

T'ai chi

T’ai chi hefur verið lýst þannig að það sé eins og menn iðki „hugleiðslu á hreyfingu“. Segja má að æfingarnar miðist við fágun en ekki styrk og með þeim sé unnið með allar hliðar manneskjunnar í einu - hug, líkama og anda. Ekki er vitað um uppruna t’ai chi annað en að hans er að leita í Kína en Vesturlandabúar kynntust t’ai chi ekki fyrr en eftir miðja 20. öldina. Leyndardómurinn við t’ai chi ...

Nánar
Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Fákafeni 11 108 Reykjavík
Sími: 585 8715

Opnunartími:
Virka daga kl. 08-20
Laugardaga kl. 10-18
Sunnudaga kl. 12-18
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17