Jóga er stundað í þeim tilgangi að auka heilbrigði og andlegan þroska einstaklingsins. Jógaástundun hjálpar til við að ná fullri líkamlegri, andlegri og huglægri heilsu og halda henni. Einnig eykur hún þekkingu manneskjunnar á sjálfri sér og þörfum líkama og hugar. Í jógafræðum er sagt að sá, sem er sjálfum sér nógur, sé heilbrigður og laus við þá sjúkdóma sem streita og slæmar lífsvenjur leiða til.

Elstu heimildir sýna að jóga hefur verið stundað á Indlandi frá því fyrir um 6000 árum en elsta rit sem þekkt er um jóga, Yoga Sutra, er skrifað á 4. öld f. Krist og er enn hornsteinn í þeim fræðum sem jóga byggir á.

Tilgangur með jógaæfingum er að hafa heilbrigðan huga og líkama svo hægt sé að lifa í sátt við umheiminn og njóta lífsins til fulls. Mönnum er hjálpað við að bæta öndun og líkamsstöðu svo það leiði til bættrar heilsu, andlegrar vellíðunar, aukins sjálfstrausts, til að létta spennu og minnka streitu. Rannsóknir hafa sýnt að jógaiðkun getur komið í veg fyrir sjúkdóma og er talin öflug meðferð gegn öllum langvinnum sjúkdómum t.d. meltingarsjúkdómum og sjúkdómum í taugakerfi. Auk þess vinnur jógaiðkun bug á streitusjúkdómum vegna áhrifa hugleiðslunnar á líkamann.
Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17