Qi gong, sem þýðir leiðin að lífsorku, eru ævafornar kínverskar lífsorkuæfingar. Markmiðið með því að stunda qi gong er að efla hugarafl, anda, efni, líkama og sál en æfingarnar hjálpa mönnum við einbeitingu og að auka andlegt úthald. Í qi gong er sagt að lífsorkan komist vel af án manneskjunnar en manneskjan komist ekki af án lífsorkunnar.
Æfingarnar eiga að efla og styrkja kjarnann í hverjum og einum og hjálpa honum að skynja sköpunarkraftinn í sjálfum sér og einnig að öðlast nýja sýn á það sem fangar huga hans á hverjum tíma. Í qi gong er talað um að rækta jurt skynseminnar, heilbrigðis og langlífis. Jarðvegurinn þarf að vera frjór en gæta ber að því að illgresi nái ekki að skjóta rótum í svo frjóum jarðvegi.
Hægt er að iðka qi gong í hópi eða einir eða hvoru tveggja. Margir stunda qi gong á hverjum degi en best þykir að stunda æfingarnar úti í guðsgrænni náttúrunni en þannig er best að tengjast orkunni sem er alls staðar í kringum okkur.