Iðkun Rope Yoga leiðir af sér aukinn styrk í kvið, heldur líkamsþyngd í skefjum, eykur orku og þol. RopeYoga skapar einnig meðvitund um þær andlegu uppsprettur sem í einstaklingnum búa, raunverulega upplifun á "núinu" og því lífi sem hann velur að lifa hverju sinni. Það gefur iðkandanum færi á að vera farvegur breytinga sem leiða til djúpstæðari vellíðunar, persónulegrar velgengni og auðlegðar.
ROPE YOGA EYKUR BLÓÐSTREYMI TIL MELTINGARFÆRANNA Þegar blóðstreymi eykst í meltingarfærunum þá eykst brennslan í sama hlutfalli.
ROPE YOGA EYKUR SÚREFNISTÖKU Í KVIÐARHOLI Meðvituð öndun í Ropeyoga kerfinu flytur aukið súrefni um kviðarholið, sem síðan eykur og bætir flesta starfsemi líkamans.
ROPE YOGA BÆTIR MELTINGU NÆRINGAREFNA Súrefni og aukið blóðstreymi bætir úrvinnslu nauðsynlegra næringarefna. Blóðið flytur öll helstu næringarefni til líkamsfrumana á meðan súrefnið heldur frumunum gangandi. Ropeyoga hvetur upptöku næringarefna og eykur meltingu/brennslu.
ROPE YOGA MINNKAR EITURÁHRIF Aukin blóðhringrás, meira súrefni og Ropeyoga, sem í raun "nuddar innri líffæri," valda því að líkaminn á auðveldara með að losa sig við og brjóta upp eiturefni.
ROPE YOGA JAFNAR MATARLYSTINA Flestir sem stunda Ropeyoga verða fljótt varir við að matarlistin verður jafnari og betri.
ROPE YOGA BÆTIR BRENNSLU Ropeyoga eykur fitubrennslu og uppbyggingu vöðva, ekki aðeins í kviðarholinu heldur um allan líkamann. Þetta verður til við samvirkni blóðrásarinnar, öndunnar, hormónastöðu og efnarfræðilegrar orkuframleiðslu.
ROPE YOGA EYKUR OG BÆTIR VÖÐVASKIPAN Í KVIÐARHOLINU
Ropeyoga styrkir vöðva í efri, mið og lægra kviðarholi, auk hliðarvöðva kviðarholsins. Betra form bætir meltingu, líkamsstöðu og styrkir hryggarsúluna.
ROPE YOGA LAGAR ALLA LÍKAMLEGA VÖÐVASKIPAN
Auk kviðarholsins þá styrkjast allir stærstu vöðvar líkamans, svo sem efri fótleggir og brjóskassi, ásamt höndum, rassi, og baki. Aukið magn vöðva þýðir að aukin brennsla á sér stað - hitaeininga brennsla.
ROPE YOGA EYKUR VÖÐVASKIPAN INNRI LÍFFÆRA Maginn, jafnt sem stór og smá innri líffæri, eru gerð úr vöðvum sem þurfa reglubundna hreyfingu og vöðvasamdrátt til að geta starfað. Ropeyoga styrkir þessa vöðva sem svo bæta upplausn fæðunnar og hreyfingu meltingarveggjanna, sem er besta leið fæðunnar um meltinga kerfið.
ROPE YOGA LOSAR ÚRGANGSEFNI ÚR LÍKAMANUM Eftir því sem vöðvar kviðarholsins og líffæranna verða sterkari, þeim mun auðveldari og jafnari verður losun úrgangsefna úr líkamanum.
Með því að styrkja kviðholsvöðvana, þá losnum við undan bakverkjum og spennu í hálsi. Byrjendur sem stunda Ropeyoga finna strax fyrir auknum styrk kviðholsvöðvana, sem leiðir til betri meltingar, betri upplausnar fæðunnar, auðveldari losun úrgangsefna og betri brennslu.
Sjá nánar á heimasíðu Rope Yoga