T’ai chi hefur verið lýst þannig að það sé eins og menn iðki „hugleiðslu á hreyfingu“. Segja má að æfingarnar miðist við fágun en ekki styrk og með þeim sé unnið með allar hliðar manneskjunnar í einu - hug, líkama og anda.

Ekki er vitað um uppruna t’ai chi annað en að hans er að leita í Kína en Vesturlandabúar kynntust t’ai chi ekki fyrr en eftir miðja 20. öldina.

Leyndardómurinn við t’ai chi felst í hugarró en hreyfingarnar eru gerðar meðan slakað er á líkama og huga. Sagt er að hámarksnýting fáist með lágmarks áreynslu. T’ai chi er afar einfalt, engin læti og engar óþarfa hreyfingar. T’ai chi snýst um að finna þyngdarpunkt líkamans og síðan smám saman leiðina inn að miðju hinnar andlegu vitundar. Einstaklingurinn mun læra að hemja sig, safna saman orku í líkamanum og veita henni síðan útrás með fullri stjórn gegnum hreyfingu.

T’ai chi er líkamsþjálfun sem krefst engrar áreynslu enda mælt með þessum æfingum við þá sem eru með veilu fyrir hjarta svo og virðast þessar æfingar henta eldra fólki afar vel og þeim sem eiga það til að keyra sig um of. Til eru tvenns konar raðir hreyfinga og saman stendur önnur þeirra af 100 hreyfingum og tekur um 20 mínútur en hin er 37 hreyfingar og tekur um 10 mínútur.
Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17