Mataræði og næring

Þeir sem vilja bæta heilsuna ættu alltaf að byrja á því að skoða mataræði sitt og lífsmynstur.

Allir geta verið sammála um að mikið unninn matur, matur sem inniheldur mikið af rotvarnarefnum, litarefnum, hvítum sykri, hvítu hveiti eða MSG (monosodium glutomat, E-621, þriðja kryddið, bragðaukandi efni) og öðrum aukaefnum, getur vart talist heppilegur kostur fyrir nokkurn mann.

Fólk þarf að vera meðvitað um hvað það lætur ofan í sig, lesa vel innihaldslýsingar á því sem keypt er, og sleppa því sem stenst ekki þær kröfur sem hver og einn hefur sett sér. Það er afar misjafnt hvar fólk setur mörkin og það sem einn myndi aldrei láta ofan í sig finnst öðrum allt í lagi.

Hver og einn ætti að elda allan mat frá grunni og nota grænmeti og ávexti þar sem hægt er að koma því við, hvort sem það er í mat, á milli mála eða sem nesti í skólann og vinnuna. Nota ferskar kryddjurtir en þegar því verður ekki viðkomið þá að nota krydd sem eru laus við öll aukaefni

Mikil vatnsdrykkja er góða og það er gott ráða að setja appelsínu- eða sítrónusneiðar út í vatnið til tilbreytingar. Það er gott að pressa sinn eigin ávaxta- og grænmetissafa á hverjum morgni og má benda á safa úr gulrótum, engifer, appelsínum og sítrónu.

Hver og einn verður að velja þá leið hann ætlar sér fara. Margir hafa stigið skrefið til fulls og borða t.d. aldrei sykur, hvítt hveiti, unninn mat, kjöt og fisk. Taka alltaf með sér mat í veislur og drekka einungis vatn og te. Aðrir fara milliveginn og reyna að borða hollan og góðan mat sem oftast en falla inn í fjöldann í veislum og boðum. Síðan eru það þeir sem borða það sem að þeim er rétt og hugsa aldrei um það hvað þeir setja ofan í sig. Lifa á skyndibitamat, gosi og sælgæti. Hver og einn verður að velja fyrir sig hér eins og endranær.
Sjá allt

Ætihvönn

Ætihvönn er þekktasta lækningajurtin á Íslandi með langa og merkilega sögu bæði á Íslandi og Norðurlöndum. Ætihvönn var eftirsótt lækninga-, mat- og kryddjurt hér á landi allt fram á síðustu öld. Frá landnámstíð voru hvannagarðar við bæi. Ætihvönn var fyrsta ræktaða grænmetið á Norðurlöndum. Hvönnin var einnig mikilvæg verslunarvara á markaðstorgum í Evrópu frá upphafi víkingaferða og fr...

Nánar

Amaranth kornið

Amaranth er ein elsta ræktaða korntegundin á jörðinni. Yndislegt hnetubragð hennar og frábær samsetning næringarefna gerir hana einstaka meðal korntegunda. Inkar og Aztekar trúðu því að með því að borða þessa fíngerðu korntegund þá fengi maðurinn yfirnáttúrulega krafta. Þegar menning Inka og Azteka leið undir lok gleymdust ræktunaraðferðir Amaranth. Sem betur fer hefur með hjálp vísindan...

Nánar

Gæða te fyrir einstakar stundir

Það má alltaf auka svolítið við hamingjuna í lífinu. Hamingjuteið vinsæla gerir einmitt það. Hamingjuteið hefur kryddkeim af Hibiscus blómi, Rosemary og Cardamon. Fylgið vel leiðbeiningunum við uppá hellinguna til að laða fram ánægju og gleði í líf ykkar.   Það skiptir engu hver markmið okkar eru í lífinu við höfum öll þörf fyrir hvatningu til að fylgja draumum okkar. Réttu orðin á r...

Nánar

Hvað er Spírulina?

Lifestream Spírulina eru örsmáir blágrænir þörungar (blue-grean alge) sem eru ræktaðir í ferskvatni, Lifestream notar ekki villta þörunga vegna mengunar, sýkingar og minna næringargildis. Fjöldi vísindamanna er á þeirri skoðun að þessi örsmáa Spírulina-jurt sé nánast fullkomin undrafæða. Líkaminn nýtir sér næringu úr Spírulina betur en nokkru öðru fæði, að grænmeti meðtöldu. Mörg hundruð rannsókni...

Nánar

Hvers vegna er ég sjúk/ur í sykur og hvað er til ráða?

Hefur þú einhvern tíman farið í nammi eða sykurbindindi til að reyna að temja sykurþörfina? Hversu lengi entist það? Hvað lærðir þú um sjálfan þig? Ef til vill fór það þannig að þú þoldir ekki að vera algjörlega án sykursins lengi og ákvaðst að fá þér smá sætindi sem svo endaði í að þú gast ekki stoppað sjálfa þig því nú varð sykur- og kolvetnisþörfin hafði magnast enn meira en áður? Þetta er mjög...

Nánar

Kamut

Kamut er náskylt hveitiplöntunni en kornið af Kamut er meira en tvisvar sinnu stærra en hveitikornið. Margt fólk sem hefur óþol fyrir hveiti hefur ekki óþol fyrir kamut þó plönturnar séu náskyldar. Hægt er að nota kamut í staðinn fyrir hveiti í flestum tilfellum þó það sé mun minna gluten í kamut. Kamut er ein þeirra plantna sem viku fyrir hveiti þegar iðnaræktun hófst í Evrópu. Kamut á sér lang...

Nánar

Vítamín

Vítamínum er gjarnan skipt upp í fituleysanleg vítamín og vatnsleysanleg vítamín. A-, D-, E-, og K- vítamín eru fituleysanleg. Ef þeirra er neytt í stórum skömmtum safnast umframmagn fyrir í vefjum líkamans. B- og C- vítamín eru vatnsleysanleg og safnast ekki fyrir í líkamanum. Ef þeirra er neytt í stórum skömmtum skilst umframmagnið út í þvagi. A- vítamín A- vítamín er mikilvægt fyrir allan ...

Nánar
Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17