Ætihvönn er þekktasta lækningajurtin á Íslandi með langa og merkilega sögu bæði á Íslandi og Norðurlöndum. Ætihvönn var eftirsótt lækninga-, mat- og kryddjurt hér á landi allt fram á síðustu öld. Frá landnámstíð voru hvannagarðar við bæi. Ætihvönn var fyrsta ræktaða grænmetið á Norðurlöndum. Hvönnin var einnig mikilvæg verslunarvara á markaðstorgum í Evrópu frá upphafi víkingaferða og fram eftir öldum. Latneska nafnið Angelica archangelica fékk hún af því að erkiengill á að hafa birst evrópskum munki á miðöldum og bent á hvönnina sem lækningajurt þegar drepsótt geisaði.

Ætihvönn og ginseng eru skyldar. Ætihvönn er stór og vel þekkt fyrir sérstæða sveipi og aldin og fyrir fjölbreytt ilmefni og bragðefni sem eru notuð sem krydd. Ætihvönnin var einnig mikilsmetin lækningajurt. Talið er að ætihvönn hafi verið ein af fyrstu plöntunum til að nema land á Íslandi eftir ísöld. Hún á því 8.000 til 9.000 ára sögu hér á landi.

Sjá nánari á www.sagamedica.com
Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17