Amaranth er ein elsta ræktaða korntegundin á jörðinni. Yndislegt hnetubragð hennar og frábær samsetning næringarefna gerir hana einstaka meðal korntegunda. Inkar og Aztekar trúðu því að með því að borða þessa fíngerðu korntegund þá fengi maðurinn yfirnáttúrulega krafta. Þegar menning Inka og Azteka leið undir lok gleymdust ræktunaraðferðir Amaranth. Sem betur fer hefur með hjálp vísindanna verið hægt að finna að nýju þessa góðu eiginleika Amaranth og jafnvel geimfarar taka það nú með sér úr í geiminn.

Amaranth prótein – dýrmæt gæði
Amaranth inniheldur mikið magn af próteini sem er einstakt af gæðum. Sérstaklega er mikið magn af lysine í korninu, en það er amínósýra sem er mikilvæg fyrir heilsuna. Þess vegna er Amaranth eitt og sér eða með öðru korni sérstaklega mikilvægt í heilsusamlegu mataræði.

Auðmelt kolvetni
Vegna fíngerðrar uppbyggingar á kolvetnum í Amarant þá er það sérstaklega auðmeltanlegt.

Auðugt af steinefnum
Amaranth inniheldur meira magn af magnesíum og járni en aðrar korntegundir. Þess vegna er það í sérflokki hjá einstaklingum sem hugsa um heilsuna.

Auðugt af náttúrulegum trefjum
Nú til dags er það viðurkennd staðreynd að trefjar eru mikilvægar fyrir góða næringu. Mikið magn af náttúrulegum trefjum í Amaranth hafa því jákvæð áhrif á meltingu og hormónastarfsemi.

Matur fyrir taugakerfið og heilann
Lecithin og mikið magn af Lysine í Amaranth gefur mikilvæga næringu fyrir heilann og taugakerfið.

Amaranth, með alla sína sérstöku eiginleika og í samblandi við önnur náttúrleg efni eins og t.d. í Amaranth Fruit Muesli frá Allos, er tilvalið til að auka gæði fæðu okkar í dag.

Amaranth í samanburði við aðrar korntegundir:

Korntegund Prótein í g Lysine Trefjar í g Kalk Magnesíum Járn
Amaranth 16.0 0,82 14.3 250 310 9,0
Hafrar 12,5 0,13 5,4 53 120 4,5
Hveiti 11,7 0,38 10,3 45 145 3,0
Maís 8,5 0,29 9,2 15 120 1,5
Hrísgrjón 7,2 0,30 2,9 25 155 0,6

Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17