Gæða te fyrir einstakar stundir

  Það má alltaf auka svolítið við hamingjuna í lífinu. Hamingjuteið vinsæla gerir einmitt það. Hamingjuteið hefur kryddkeim af Hibiscus blómi, Rosemary og Cardamon. Fylgið vel leiðbeiningunum við uppá hellinguna til að laða fram ánægju og gleði í líf ykkar.  
Það skiptir engu hver markmið okkar eru í lífinu við höfum öll þörf fyrir hvatningu til að fylgja draumum okkar. Réttu orðin á réttu augnabliki geta skipt sköpum, hvort heldur þú þarfnast hvatningar eða vilt hverja. Inspiration tea er einstök blanda af sítrónugrasi, appelsínu og piparmyntu laufi sem glæðir andann og endurvekur væntingar.    
  Hvers virði væri lífið ef ekki væru vinir til að deila því með. Maður er manns gaman. Með Friendship-tei er samræðum vina viðhaldið. Keimur af Sunny Marigold blómi og Hawthorn berjum eykur tilfinningu fyrir velferð í návist vina.Gerðu vel við gamla og nýja vini og deildi þessu einstaka tei með þeim.  
Það jafnast ekkert á við það kraftaverk þegar tilfinning fyrir nýju lífi kviknar innra með þér. Níu mánuðir er góður tími til að hugleiða hvers vænta má, hvernig barnið mun líta út og hvers vegna ég varð fyrir valinu? Expectancy te er blanda af Raspberry laufum með keim af myntu sem hjálpar þér að tengjast kraftaverkinu þegar nýtt líf kviknar og slá á líkamlega verki verðandi móður.    
Það er stund fyrir uppáhaldsbókina sem þú geymir við rúmstokkinn. Þú finnur að syfjan og værðin gera vart við sig. Lemon blóm, lime blóm með keim af lavender laða fram ró og gefa fyrirheit um ljúfa drauma. Augnlokin síga og svefninn líður yfir áður en þú veist af.
Teastack™ hefur að geyma fjórar blöndur af lífrænu telaufi. Þessi hressilega lituðu tinbox innihalda 30g af Happiness og Inspiration telaufum og 20g af Friendship og Sleepy telaufum. Það er hægt að fylla á Teastack™ aftur og aftur.


Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17
Hafnarborg strandgötu 220 Hafnarfirði
Sími: 585 8720

Opnunartími:
Virka daga kl. 11-17
Fimmtudaga kl. 11-21
Laug. og Sun. kl. 12-17