Lifestream Spírulina eru örsmáir blágrænir þörungar (blue-grean alge) sem eru ræktaðir í ferskvatni, Lifestream notar ekki villta þörunga vegna mengunar, sýkingar og minna næringargildis. Fjöldi vísindamanna er á þeirri skoðun að þessi örsmáa Spírulina-jurt sé nánast fullkomin undrafæða. Líkaminn nýtir sér næringu úr Spírulina betur en nokkru öðru fæði, að grænmeti meðtöldu. Mörg hundruð rannsóknir hafa verið gerðar á Spírulina og fjöldi þeirra birtst í vísindatímaritum.
“Lífrænt fjölvítamín” næringarinnihald Til að fá skýrari mynd af hve næringarík Lifestream Spirulina er inniheldur það yfir 100 lífræn næringarefni, 13 vítamín, 16 steinefni, mikið af blaðgrænu og andoxunarefnum, SOD sem er eitt mikilvægasta varnarensím líkamans, 18 amminosýrur, fitusýrur og auðmeltanlegt járn sem veldur ekki magaónotum. Hreint og óblandað Spirulina bætir bæði nýtinguna á grænmetispróteinum og eykur aminosýruupptökuna úr fæðunni. Spirulina er lifandi næringarefni sem líkaminn á auðvelt með að taka upp og nýtir sér, það er eins og lífrænt “fjölvítamín” og ákjósanlegt sem fæðunæringarauki í viðbót við almennt fæði jafnt fyrir smábörn sem fullorðna. Til glöggvunar má gera samanburð við venjulegan mat.
Til þess að fá jafnmikið af nokkrum völdum næringarefnum og í fullorðinsdagskammti af Lifestream Spirulina, þarf að borða : 7 Gulrætur – Betakaroten
1 Skál af fersku spínati – Járn
1 Skál af híðishrísgrjónum - Kalium
1 Glas mjólk- Kalk
125 gr. Nautakjöt – Protein + B12 vítamín
30 gr. Hveitigrassafa – Blaðgræna (Clorophyll)
1 Hylki kvöldvorrósarolía – GLA fitusýrur.
Svar náttúrunnar við járnskorti Járnskortur er algengasta næringarvandamál um allan heim - sérstaklega hjá börnum, öldruðum og konum. Það er áætlað að allt að 7 af 10 konum þjáist af járnskorti. Járnskortur er algengasta næringarvandamálið hjá börnum á öllum aldri og barnshafandi konum.
Lifestream Bioactive Spirulina er járnrík fæða, verulega járnríkari en algengustu fæðutegundir. Líkaminn á auðvelt með að melta járnið í Spirulina því kenningin er að bláa litarefnið phycocyanin í Spirulina myndi uppleysanlega samstæðu við járnið og önnur gagnleg næringarefni við meltingu sem gerir járnið líffræðilega auðmeltara. Áralöng meðmæli og reynsla sýnir að fjöld fólks treystir á Lifestream Bioactive Spirulina sem uppsprettu járns.
Vel þekkt vandamál tengd því að taka inn járn efnafræðilega framleitt getur verið harðlífi og verkir í þörmum. Það er mjög sjaldgæft að finna járn sem er upprunnið frá plöntum sem er líffræðilega auðmeltanlegt. Lifestream Bioactive Spirulina hefur engar aukaverkanir eins og efnfræðilega framleitt járn en sér líkama þínum fyrir auðmeltanlegu, hágæða járni sem vinnur á járnskorti fljótt og á áhrifaríkan hátt.
Lifestream Bioactive Spirulina algerlega náttúruleg leið til að byggja upp járnmagn fyrir allan aldur. Heilbrigð lífræn næring á meðgöngu og eftir fæðingu Á meðgöngu og meðan á brjóstagjöf stendur er konan meðvitaðri um nauðsyn þess að fá ómengaða, náttúrulega næringarríka fæðu fyrir sig og barnið.Á sjöunda mánuði meðgöngu fer barnið að safna járni til að tryggja sér nægjanlegt járn fyrir fyrstu mánuði lífsins, svo að aukaleg járn inntaka er mjög gagnleg á þessum tímapunkti. Einnig er Beta-carotene nauðsynlegt til að hjálpa auknum frumuvexti og þroska, tannmyndun og sjónmyndun. Auka prótein, kalsíum, járn, E-vítamín, folic acid, GLA-fitusýrur og ýmis snefilefni og steinefni eru nauðsynleg á mismunandi stigum meðgöngunnar. Í raun kemur það ekki á óvart að algengasta kvörtunin á meðgöngu er þreyta! Því barnið tekur mikla næringu frá móðurinni. Það einmitt nú sem þau 100 auðmeltanlegu, náttúrulegu og lífrænu næringarefni í Lifestream Bioactive Spirulina koma að mestu gagni fyrir þig og barnið. Ásamt vel samansettu matarræði er Lifestream Bioactive Spirulina fullkomin stuðningur á meðgöngu og framúrskarandi náttúruleg næring.
Öflug vörn gegn kvefi og flensum. En huga verður vel að því að Spirulinaþörungarnir sem eru keyptir séu af sem bestum gæðum, með hreinleika-og lífræna vottun, töflurnar eða duftið á að vera dökkgrænt og engin ljós aukakorn. Best er að dósirnar séu súrefnistæmdar til að næringarefnin varðveitist. Spírulina er mjög styrkjandi fyrir varnir líkamans, hreint Spirulina hefur hátt hlutfall af GLA-fitusýrum sem styrkir varnir líkamans, taugakerfið og dregur úr streitu, hefur það reynst vel fyrir börn og fullorðna með athyglisbrest og ofvirkni. Margir foreldrar hafa reynslu af mjög jákvæðri breytingu hjá börnum og unglingum af inntöku.
Spírulina kemur jafnvægi á blóðsykurinn, við fáum betri einbeitingu, verðum hressari og síður ofvirk, pirruð eða ör og er því gott fyrir alla sem eru í námi, prófum og undir miklu vinnuálagi. Chlorophyll sem er blaðgræna eykur súrefnismettun í blóðinu við verðum hressari en ella, vellíðan eykst og dregur úr sætindaþörf, þar sem jafnvægi kemst á blóðsykurinn. Lifestream Spírulina hefur marga jákvæða eiginleika eins og að lækka colesterol í blóðinu og hreinsa úr líkamanum óæskileg aukaefni og geislanir og þungamálma.
Hressir og veitir kraft á örskotsstundu Tilvalið er að taka Spírulina þegar þreyta sækir að og orkubirgðirnar taka að þverra, t.d. síðdegis í vinnunni, eða áður en á að fara út að kvöldi, þá erum við oft þreytt og treystum okkur varla til að drífa okkur af stað. Aðeins hálftíma eftir inntöku fær blaðgrænan í Spirulina súrefnið til að flæða um líkamann og við verðum hress og full af orku, ásamt því að Spirulina er eina plantan sem inniheldur Glycogen sem er uppspretta líkamans á skammtíma- og langtímaorku. Þegar við stundum líkamsrækt, þá verður árangurinn betri ef mikið Glycogen er til staðar í líkamanum. Ef Spírulina er tekið inn rétt fyrir aukaálag eða æfingar gefur það aukið þrek, úthald og einbeitingu. Algerlega laust við aukaverkanir sem fylgir kaffi og mörgum orkudrykkjum sem veldur gjarnan streitu og spennu. Spírulina truflar ekki svefn, sumum finnst þeir sofa betur og vakna úthvíldari.
Fyrir hverja er Spírulina? Fullorðna.
Unglinga, börn á öllum aldri, frá því að þau geta tuggið.
Barnshafandi konur og konur með barn á brjósti.
Einnig fyrir þróttafólk, skólafólk- og alla sem eru undir miklu álagi.
Lífræn uppbygging næringarefnana er í fullkomnu jafnvægi og samræmi við starfsemi líkamans og er því ákjósanlegt fyrir alla fjölskylduna. Eina Spírulína á markaðinum með súrefnistæmdar umbúðir, vottað lífrænt og hefur hreinleika-og gæðastaðal ISO 14001, ISO 9001.
www.celsus.is