Hvers vegna er ég sjúk/ur í sykur og hvað er til ráða?
Hefur þú einhvern tíman farið í nammi eða sykurbindindi til að reyna að temja sykurþörfina? Hversu lengi entist það? Hvað lærðir þú um sjálfan þig? Ef til vill fór það þannig að þú þoldir ekki að vera algjörlega án sykursins lengi og ákvaðst að fá þér smá sætindi sem svo endaði í að þú gast ekki stoppað sjálfa þig því nú varð sykur- og kolvetnisþörfin hafði magnast enn meira en áður? Þetta er mjög algengt. Því málið er að sjálfsagi og bindindi eitt og sér eru engar lausnir á sykurfíkninni. Þú verður að skoða löngunina í sykur mun nánar til að skilja hverjar ástæður hennar eru..
Líkami okkar er ótrúlega fullkominn. Hann sinnir ótrúlegustu verkefnum án þess að við höfum fyrir því. Lungun þenjast og dragast saman, hjartað slær reglulega, frumuskiptingar eiga sér stað til að endurnýja líkamann, hormón eru framleidd og stillt til að halda jafnvægi á hinni ýmsu líkamsstarfsemi o.s.frv. Og þegar þú ert reglulega með sterka þörf fyrir sykur, þá er líkaminn að segja þér að eitthvað er í ójafnvægi. En vandamálið er að við höfum ekki lært að túlka þessar vísbendingar rétt og höfum í staðinn prógrammað okkur til að túlka þetta ójafnvægi sem vöntun á sykri og notum því sykurinn sem lausn á vandamálinu! Bingo! Það er auðvitað bara skammtímalausn þar sem vellíðanin sem fylgir sykurneyslunni endist ekki lengi. Vandamálið er því ennþá til staðar. Því nauðsynlegt er að skoða sykurþörfina í samhengi við allan lífsstílinn.
Nú sendi ég þér þessa áskorun: næst þegar þú færð löngun í sykur, stöldraðu við og í staðinn fyrir að ´leysa vandamálið" með sykri, skoðaðu nánar og vertu forvitinn um hvaða skilaboð líkaminn er raunverulega að færa þér. Ef þú ert að borða mat sem er næringasnauður, mikið unnin, kolvetnis- og sykurríkur eða borðar óreglulega og jafnvel oft á hlaupum, þá er kominn tími til að bæta og breyta mataræðinu. Það sama má segja um gamlar venjur. Spyrðu sjálfan þig hvar, hvenær dags og með hverjum ertu þegar löngunin í sykur ríður yfir og hvernig líður þér?
Lífsstíllinn spilar inní sykurþörfina. Athugaðu hvort streita, svefnleysi, eða önnur andleg vanlíðan (einmannaleiki, reiði, sorg, áhyggjur, o.s.frv) sé ríkjandi í lífi þínu.
Sykurþörfin ein og sér er eitt vandamál, en svo er það allt í sambandi við hvar sykurinn er falinn og hvað hann er í raun að gera í við heilsu okkar....
Viltu vita og læra meira um sykurinn í lífi þínu? Skráðu þig þá í dag á námskeiðið um sykurþörf sem haldið verður fimmtudaginn 25. mars nk. Í Maður Lifandi í Borgartúni.
Heilsukveðja,
Linda Steinunn