Meðgöngunudd

Meðhöndlun á meðgöngu með nuddi er eitt það besta sem konur hafa kost á í dag. Nudd virkar slakandi, er styrkjandi fyrir allt stoðkerfið, mýkir vöðva, teygir á liðböndum, blóð og sogæða flæðið eykst, hjálpar t.d að fyrirbyggja bjúg eða losa um bjúg. Nuddmeðferð getur dregið úr andlegri spennu, streitu, verkjum og verkjakvíða. Nudd jafnar orku um leið að auku hana, veitir því vellíðan og meiri styrk. Konur með reynslu af meðgöngunuddi vitna um góða meðferð sem hefur styrkt þær á meðgöngunni sjálfri og til undirbúnings fyrir fæðinguna. Heildræn meðhöndlun nudds tekur til andlegs, tilfinningalegs og líkamlegs heilsuástands hverju sinni.

Meðganga markar tímamót og er flestum mjög kærkomin. Allur líkaminn lagar sig að litla barninu sem borið er undir brjósti. Stendur konan jafnframt frammi fyrir miklum breytingum bæði heima fyrir og í vinnu, meðal ættingja sem vina. Hún þarfnast stuðnings og á hann skilið, einkum þar sem núna er það önnur manneskja sem reiðir sig á heilsu hennar og lífsorku.

Undirbúningur fæðingar
Nudd getur hjálpað til að undirbúa fæðinguna sjálfa á marga vegu, t.d. þrýstipúnktameðferð til að koma fæðingarferli í gang. Reglulegt nudd á neðri hluta baks, kviðarholi og á lærunum innanverðum getur losað um þráláta spennu á þessum svæðum. Slík spenna getur valdið mótstöðu á meðan fæðingu stendur. Nudd eykur einnig meðvitund þína um spennu í líkama þínum og kennir þér hvernig þú getur á meðvitaðan hátt losað um hana og þannig aukið sjálfstraust þitt og stjórn á fæðingunni. Þú getur jafnvel undirbúið þig fyrir fæðinguna með því að æfa einbeitingar-, öndunar- og slökunartækni á meðan aum svæði eru nudduð.

Nudd á meðan fæðingu stendur
Nudd er góð viðbót í fæðingarferlinu og hefur verið notað frá örófi alda. Það getur hjálpað þér til að slaka á á milli hríða, dregið úr verkum sem stífir vöðvar valda, auk þess sem það veitir þér tilfinningalegan stuðning og uppörvun. Þar sem streita getur truflað framleiðslu fæðingarhvetjandi hormóna, getur nudd komið því til leiðar að fæðingin gangi betur fyrir sig. Það eru fágæt forréttindi að hafa nuddara við höndina á meðan fæðingu stendur. Annar valkostur er sá að þú kennir barnsföður þínum þá nuddtækni sem fær þig til að slaka á. Nuddarinn þinn kann að stinga upp á því að þið mætið jafnvel saman í tíma.

Nudd eftir barnsburð
Náttúran sér um að færa líkamann í samt horf eftir meðgönguna en nudd getur flýtt fyrir því ferli t.d. flýtt fyrir bata gyllinæðar, eins slakað á æðahnútum sem hafa myndast á meðgöngunni og m. fl. Ef þú ert með barnið á brjósti getur róandi nudd verið gagnlegt þar sem spenna og vöðvaverkir geta valdið mjólkurmissi.
Nudd styrkir þig jafnt andlega sem líkamlega, sama hvort þú upplifir fæðingingaþunglyndi eða ekki. Nudd getur hjálpað þér til að takast á við þær líkamlegu kröfur sem ungabarnið útheimtir, dregið úr spennu og aukið orku þína

Er nudd fyrir þig?
Nudd getur ekki algerlega afmáð öll óþægindi sem meðgöngunni fylgir. En reglulegt nudd bæði meðan á meðgöngu stendur og vikurnar á eftir getur linað líkamlegu einkennin og hjálpað þér til að ráða bót á spennu. Þar sem nudd eflir heilsu þína og lífskraft, þá getur nuddið auðveldað þér í að laga þig að breyttum aðstæðum….mundu að þú átt það besta skilið.

Katrín Erla Kjartansdóttir
katrinkj@gmail.com
Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17