Sogæðanudd er gjarnan notað á þá sem þjást af miklum bjúg. Bjúgur er vatn sem sest á milli frumnanna í líkamanum í stað þess að haldast inni í æðakerfinu. Hann getur verið staðbundinn, eins og við meiðsli eða bólgu, en einnig getur hann líka verið um allan líkamann.
Í sogæðanuddi er allur líkaminn nuddaður með lengri og léttari strokum en tíðkast í venjulegu nuddi en þegar örva þarf dýpra sogæðkerfið þá er nuddað töluvert fastar.
Konur sem hafa misst annað brjóstið vegna krabbameins eiga á hættu að fá bjúg í handlegginn þeim megin sem brjóstið var tekið. Þá þarf að byrja á að örva sogæðakerfið annars staðar í líkamanum áður en farið er að örva veika líkamshlutann til að losna við umframvökva.
Ýmsir þættir orsaka bjúg en algengast er að hann verði vegna aukins þrýstings í æðum og aukins gegndræpis í æðaveggjum. Eins getur mikil saltnotkun, ónóg vökvainntaka og ónóg próteininntaka valdið bjúg. Til að ráða bót á bjúgmyndun eru ýmis ráð og t.d. getur hjálpað að drekka mikið af hreinu vatni, borða próteinríkan mat, gæta hófs í saltnotkun, góð hvíld, sund og/eða fara í sogæðanudd.