Margir hafa lent í því að geta ekki sofið eina og eina nótt og finna þá gjarnan fyrir þreytu allan næsta dag. Aðrir hafa aftur á móti lent í þeim vítahring að ná ekki góðum og værum svefni í lengri tími. Ástæðurnar fyrir svefnleysinu eða svefntruflunum geta verið margvíslegar og hver og einn þarf að finna út hvers vegna hann getur ekki sofið.

Hafa ber í huga að svefnlyf geta verið hjálpleg við að rjúfa vítahring svefnleysis, en langvarandi notkun er oftast gagnslaus og getur verið skaðleg. Við notkun svefnlyfja er rétt að muna eftir áhrifum þeirra að deginum, þar sem sum þeirra valda þreytu og syfju, skertu jafnvægi, minnisleysi og minnka aksturshæfileika.

Hægt er að fá aðstoð hjá læknum eða þeim sem stunda óhefðbundnar lækningaaðferðir s.s. nálastungulæknum, svæðanuddurum, hómópötum eða ilmolíufræðingum.
Sjá allt

Góð ráð við svefnleysi

Mörg góð og gegn ráð eru til við svefnleysi. Þeir sem eiga erfitt með svefn ættu að reyna eftirfarandi ráð í nokkurn tíma og athuga hvort þau duga ekki í baráttunni við svefndrauginn. Ef þetta er ekki nóg þá er auðvitað nauðsynlegt að leita sér læknisaðstoðar. • Alltaf að fara að sofa á sama tíma. • Alltaf að fara á fætur á sama tíma. • Ekki leggja sig á daginn. • Stunda hreyfingu – góður gön...

Nánar
Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17