Góð ráð við svefnleysi

Mörg góð og gegn ráð eru til við svefnleysi. Þeir sem eiga erfitt með svefn ættu að reyna eftirfarandi ráð í nokkurn tíma og athuga hvort þau duga ekki í baráttunni við svefndrauginn. Ef þetta er ekki nóg þá er auðvitað nauðsynlegt að leita sér læknisaðstoðar.

• Alltaf að fara að sofa á sama tíma.
• Alltaf að fara á fætur á sama tíma.
• Ekki leggja sig á daginn.
• Stunda hreyfingu – góður göngutúr fyrir svefninn getur gert gæfumuninn.
• Skrúbba á sér húðina með grófum hanska eða bursta fyrir svefninn.
• Fara í heitt bað og blanda t.d. lavender olíu út í baðið.
• Stunda slökun uppi í rúmi rétt fyrir svefninn.
• Gott er að hafa blóm í svefnherberginu – þau gefa frá sér jákvæða orku.
• Fjarlægja öll rafmagnstæki úr svefnherberginu.
• Passa upp á hitastigið – ekki hafa of heitt og ekki of kalt.
• Forðast að borða þungan mat á kvöldin.
• Forðast öll örvandi efni í a.m.k. 2 klukkustundir fyrir svefn.
• Ekki fara að sofa svangur.
• Ekki vinna klukkutíma fyrir svefn.
• Aldrei að fara að sofa í æstu hugarástandi.

Ýmis önnur úrræði - leitið ráða hjá starfsfólki Maðurlifandi
Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17