Lífræn ræktun er ræktunaraðferð þar sem menn nota ekki verksmiðjuframleidd áburðarefni og kemísk varnarlyf heldur er sífelld endurnýjun á frjómætti gróðurmoldarinnar.
Með lífrænni áburðargjöf er reynt að líkja sem best eftir þeim aðstæðum sem plantan þarfnast til að ná eðlilegum vexti og þroska. Með lífrænum áburði er fyrst og fremst átt við húsdýraáburð, safnhaugamold, fiskimjöl, þörungamjöl og þörungaupplausn.
Til að stemma stigu við ágangi meindýra eru ýmsar leiðir færar aðrar en að nota eiturefni. Skordýrasápur og ýmis jurtaseyði eru ágæt en áhrifaríkasta leiðin er notkun náttúrulegra óvina, svokallaðar lífrænar varnir. Þá er skordýrum dreift í gróðurhúsin og örverum sem nærast á meindýrunum og halda þeim þannig í skefjum.