Rafsegulsvið / rafsegulóþol

Rafsegulóþol er skrýtið fyrirbæri og sennilega algengara en halda mætti. Hverjum hefði getað dottið í hug að hægt væri að fá ofnæmi fyrir rafmagni. Það virðist þó vera tilfellið. Í Svíþjóð hefur þessi umræða verið lengi á döfinni. Einkenni rafsegulóþols, geta átt við margt annað. Einkenni geta verið t.d. höfuðverkur, sviði og doði í húð, síðþreyta, verkir í vöðvum og liðamótum, suða í eyrum, pirringur í augum, truflað jafnvægisskin, ógleði, verkir fyrir brjósti, andþrengsli og hjartsláttartruflanir svo eitthvað sé nefnt.

Langtímaviðvera í rafmenguðu umhverfi virðist þurfa til að kveikja rafsegulóþol. Rafsegulsvið getur verið talsvert í umhverfi okkar án þess að við höfum hugmynd um. Fyrirbæri eins og flökkustraumar geta legið í járnabindingu veggja og valdið umtalsverðu rafsegulsviði án þess að nokkur geri sér grein fyrir því. Einnig geta rafmagnskaplar legið i veggjum herbergja, eins hjá börnum, og valdið umtalsverðu rafsegulsviði.

Valdemar Gísli Valdemarsson
Rafeindavirkjameistari
www.simnet.is/vgv  

http://www.geomack.com/  
Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17