Greind börn verða grænmetisætur

Því greindara sem barn er, því meiri líkur eru á að það gerist grænmetisæta á fullorðisaldri. Það eru breskir vísindamenn sem hafa komist að þessari niðurstöðu eftir ransókn á lifnaðarháttum 8.179 einstaklinga. Allt þetta fólk tók greindarpróf við 10 ára aldur og nú var það beðið að skýra frá matarvenjum sínum. Alls sögðust 365 þátttakendur vera grænmetisætur og þeir reyndust einmitt hafa mælst með marktækt hærri greindarvísitölu en meðaltalið við 10 nára aldur. Þessi nýja uppgötvun gæti átt þátt í að skýra hvers vegna greint og vel menntað fólk er jafnframt heilbrigðara, eins og sýnt hefur verið fram á með mörgum rannsóknum. Grænmetisætur eiga síður á hættu að fá of háan blóðþrýsting, of mikið kólestaról eða hjarta- og æðasjúkdóma.
(Lifandi vísindi nr. 11/2007)
Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17