Það er afar góður siður að þurrbursta húðina á hverjum morgni í 2-3 mínútur áður en farið er í sturtu. Það er, að bursta eins og sogæðakerfið vinnur, eða frá tám upp að mitti og frá fingurgómum að hjartanu. Húðin er eitt af hreinsikerfum líkamans og með því að bursta hana hjálpar það líkamanum. Ef fólk er mjög slæmt til heilsunnar má gjarnan þurrbursta húðina kvölds og morgna því að burstunin örvar blóðrásar- og sogæðakerfið. Húðburstun eykur vellíðan manns yfir daginn en auk þess verður húðin mýkri og stinnari.