10 leiðir til hamingjuríks lífs

TÍU LEIÐIR TIL HAMINGJURÍKS LÍFS
(Unnið upp úr bókinni: Munkurinn sem seldi sportbílinn sinn)

1. EINVERA
Einvera og þögn tengja þig við sköpunargleði þína og óendanlega vitneskju alheimsins.
Innri kyrrð fylgja miklir kostir eins og djúp tilfinning fyrir góðri heilsu, innri ró og
ótakmörkuð líkamleg orka. Mikilvægt að tengjast náttúrunni, anda að sér fersku lofti.

2. LÍKAMSÆFINGAR
Þegar þú sinnir líkamanum, sinnirðu líka huganum. ,,Að anda rétt er að lifa rétt”.
Fljótlegasta leiðin til að margfalda orkuna er læra virka öndun, anda. Djúp öndun (með því
að þenja út magann á innöndun) opnar fyrir orkulindirnar.

3. LIFANDI NÆRING
Fylltu diskinn með grænmeti, ávöxtum og fræjum. Þetta er það fæði sem náttúran ætlar þér.
Hún er lifandi, orkumikil og afar heilsusamleg. Öflugustu dýr jarðar, allt frá górillu til fíla
eru grænmetisætur. Léleg næring eyðir líkamlegri og andlegri orku.

4. RÍKULEG ÞEKKING
Hún snýst um ævilangan lærdóm og að auka þekkingu þína á því góða í sjálfum þér og
öllum í kringum þig. Lestu uppbyggilegar bækur daglega. Þú getur fundið svör á prenti við
hverju einasta vandamáli sem þú hefur kynnst á lífsleiðinni. Hefðbundið nám skapar þér
stöðugar tekjur, sjálfsnám skapar þér auðævi!

5. SJÁLFSSKOÐUN
Öll búum við yfir hæfileikum sem liggja í dvala innra með okkur. Gefðu þér tíma til að
hugsa meðvitað. Vendu þig á að kanna hug þinn. Hvernig nýttirðu daginn? Hvað skildi
hann eftir? Skrifaðu niður það hvernig þú ,,eyddir” tíma þínum og ákveddu að verja honum
betur á morgun.

6. VAKNAÐU SNEMMA
Flestir sofa miklu meira en þeir hafa þörf fyrir. Síðustu tíu mínúturnar áður en þú sofnar og
fyrstu tíu mínúturnar eftir að þú vaknar hafa djúp áhrif á undirvitund þína. Hugsaðu jákvætt.
Sjáðu sjálfan þig fyrir þér í því hlutverki sem þú vilt vera. Settu þér skrifleg markmið. Lifðu
hvern dag eins og hann sé þinn síðasti.

7. HLUSTAÐU Á TÓNLIST
Tónlist lyftir andanum, blæs í þig orku, fær þig til að dansa og syngja. Mikill kraftur felst í
tónlist sem þér líkar, hún veitir þér mikla uppörvun. Njóttu tónlistar á hverjum einasta
degi. Spilaðu lögin ,,þín” ef þú ert dapur eða lúinn. Og þú tekur gleði þína á ný.

8. VANDAÐU ORÐAVALIÐ
Orð hafa áhrif á hugann, hvort sem þau eru sögð eða skrifuð. Þau eru kraftmiklir
áhrifavaldar. Þú ert það sem þú hugsar og þú ert líka það sem þú segir við þig á daginn.
Segðu jákvæða og fallega hluti um sjálfan þig og þér mun líða þannig.

9. VERTU SJÁLFUM ÞÉR SAMKVÆMUR
Skilningur, auðmýkt, þolinmæði, heiðarleiki, kjarkur. Ef gerðir þínar eru til samræmis við
þessi lögmál muntu finna djúpan innri frið og jafnvægi. Láttu hjartað ráða för og
framhaldið kemur af sjálfu sér. Slíkt leiðir til eilífrar hugljómunar.

10. EINFALDLEIKI
Ekki velta þér upp úr smámálum. Einbeittu þér eingöngu að þeim málum sem hafa
raunverulega merkingu fyrir þig. Þá verður lífið einfalt, gjöfult og friðsælt. Ekki þóknast
öðrum á þinn kostnað. Elskaðu sjálfan þig og þá muntu elska aðra enn meira.

Þorgrímur Þráinsson
Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17