Allt sem við gerum verður að gulli

ALLT SEM VIÐ GERUM VERÐUR AÐ GULLI

Hversu oft gleymum við okkur við að fylgjast með einstaklingi sem geislar af sjálfstrausti? Göngulagið, fasið, augnaráðið, ákveðnin og jafnvel klæðaburðurinn gefur til kynna að viðkomandi líður vel í eigin skinni og býr yfir ríkri sjálfsvitund. Hvað býr að baki þessu er ómögulegt að segja en í raun og veru snýst þetta um ákvörðun. Að taka ákvörðun um að vera hamingjusamur, glaður og töfrandi. Og lífið er svo einkennilegt að þegar ákvörðun hefur verið tekin dansar lífið með af því það getur ekki annað og allt gengur upp. Slíkt eykur sjálfstraustið enn frekar og það verður aldrei aftur snúið. Draumarnir rætast hver af öðrum.
Hvernig högum við okkur dags daglega? Berum við höfuðið hátt? Horfum við í augu fólks þegar við heilsum? Heilsum við að fyrra bragði? Krossleggjum við hendur í návist þeirra sem okkur líður ekki vel með? Setjumst við á fremsta bekk eða þann aftasta þegar við sækjum fyrirlestur eða förum á námskeið? Brosum við til ókunnugra? Gerum við góðverk?
Hversu mörg okkar eru meðvituð um að við getum bætt okkur heilmikið í mannlegum samskiptum og daglegri líðan með því að temja okkur fallega og sjálfsörugga framkomu? Öll erum við yfirleitt föst í ákveðnum þægindahring sem veitir okkur takmarkaða vellíðan og við óttumst að fara út fyrir hann, kanna ókunna stigu. Og mörg okkar óttast að takast á við sitt eigið sjálf. Við sjálf erum og verðum alltaf mesta áskorunin.
Við ættum að vakna til hvers einasta dags með því hugarfari að dagurinn verði frábær. Með þannig afstöðu að leiðarljósi og með því að vera meðvituð um að við erum yfirleitt vegin og metin af framkomu okkar, tökum við skref upp á við í víðum skilningi. Og við gerum okkur grein fyrir því að með því að heilsa með handabandi, brosa, hrósa, ganga vasklega, vera góðir hlustendur, virða skoðanir annarra og troða okkar eigin skoðunum ekki upp á aðra, öðlumst við þá virðingu og sjálfstraust sem við sækjumst eftir, jafnvel ómeðvitað. Svo má ekki gleyma því að þegar við borðum hollan mat gleðjum við ekki bara líkamann heldur hoppar sálin af kæti. Og þegar sálin, líkaminn og hugurinn vinna saman verður allt að gulli sem við gerum.
Auðvitað líður okkur misvel frá degi til dags og ræður jafnvægi (eða ójafnvægi) í fjölskyldulífi, atvinnu, áhugamálum og samskiptum við aðra yfirleitt mestu þar um. En í langflestum tilfellum getum við stjórnað líðan okkar, ekki síst með því að láta ekki litlu hlutina setja okkur út af laginu. Hver dagur er guðsgjöf og það er ágætis venja að lifa hann, og njóta hans, eins og hann sé okkar síðasti.

Þorgrímur Þráinsson
Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17