Húðin þarfnast góðrar umhirðu

Húðin þarfnast góðrar umhirðu
Húðin er stærsta líffæri líkamans, en þrátt fyrir mikilvægi hennar meðhöndlum við hana mjög illa. Við berum á hana alls konar efni til að hindra að svitinn komist út og efni sem við teljum okkur trú um að láti húðina líta betur út, en hugsum sjaldan út í það hvaða áhrif þessi efni hafi á líkamann til lengdar. Í gömlum náttúrulæknisfræðiritum segir að ekki skuli setja neitt á húðina sem ekki er hægt að borða. Öll efni sem sett eru á húðina fara í gegnum hana á örskömmum tíma og inn í líffærakerfi líkamans, sem þarf síðan að vinna úr þeim efnum til að hreinsa sig. Það bæði eykur álag á líkamann og veikir hann, sem aftur leiðir til þess að hann er varnarlausari gagnvart sjúkdómum.
Þurrburstun húðar
Til að auka hreinsigetu húðarinnar og starfsemi hennar er gott að bursta hana einu sinni til tvisvar á dag með bursta með náttúrulegum hárum. Best er að bursta hana með hringlaga hreyfingum frá fingurgómum að nafla og síðan frá tám upp að nafla. Andlitið má bursta með sérstökum mjúkum bursta með léttum hringlaga hreyfingum. Best er að gera þetta fyrst á morgnana, en einnig er gott að bursta áður en farið er að sofa á kvöldin. Með burstum hreinsum við í burtu dauðar húðfrumur, en við það fara einnig í burtu ýmis úrgangsefni og svitakirtlarnir haldast því betur opnir. Um leið og húðin hitnar og roðnar fáum við betra blóðflæði um hana. Þegar blóðflæði til húðarinnar eykst kemur blóðflæði til annarra líffæra undir húðinni einnig til með að aukast, sem þýðir einfaldlega að meira súrefni berst til þeirra og hjálpar þeim að verða hreinni og sterkari. Með burstun eykst starfsemin í eitlabrautum líkamans. Eitlar og eitlabrautir líkamans eru nokkurs konar skólplagnir hans. Með burstuninni eiga óhreinindin sem þar eru auðveldar með að tæmast inn í stærri eitlana og skiljast út úr líkamanum eftir eðlilegum leiðum.
Eftir burstun er líka gott fyrir starfsemi eitla og eitlabrautanna að nudda líkamann með lífrænni kókosolíu. Hún virkar þá sem nokkurs konar smurningur inn á eitlabrautirnar, óhreinindin berast hraðar eftir þeim og við losnum þannig fyrr við þau úr líkamanum. Best er að bíða í 5 mínútur með olíuna á líkamanum og nudda hana síðan af með þurru, helst hvítu þvottastykki. Óhreinindin sem koma úr svitaholunum eiga eftir að koma þér á óvart. Eftir að búið er að þurrnudda olíuna af húðinni er hægt að fara í sturtu.
Guðrún G. Bergmann – sjá þessar upplýsingar og aðrar upplýsingar um betri heilsu og öflugra ónæmiskerfi í bók Guðrúnar og Hallgríms Þ. Magnússonar læknsi CANDIDA SVEPPASÝKING
Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17