
Húðin er stærsta líffæri líkamans og hefur undraverða hæfileika. Flest okkar viljum vera með slétta, fallega og hraustlega húð. Sólarbrúnka gefur hraustlegan blæ á húðina en brunnin húð með sólarexemi er ekki eftirsóknarverð! Notum því sólarvörn en pössum okkur á því hvað er í kremunum sem við setjum á okkur
Skaðleg áhrif sólarljóss eru löngu kunn en færri þekkja til skaðlegra efna sem við notum til að verjast blessaðri sólinni. Húðin hefur þann sérstaka hæfileika að hleypa efnum inn í líkamann. Sólvarnarefni hafa mælst í þvagi nokkrum klst eftir að hún var borin á húð.
Environmental Health Perspectives birti vísindagrein um rannsókn á sex sólarvarnarefnum. Í þeirri rannsókn kom í ljós að þrjú af efnunum:
Octyl Methoxycinnamate, Oxybenzone og
4-Methylbenzylidine Camphor (4-MBC), höfðu hormónatruflandi áhrif í tveimur ólíkum tilraunum og gætu því verið skaðleg heilsu fólks. Efnið 4-MBC reyndist mun virkara en hin tvö efnin. Sólarvörnin frá Sante inniheldur ekki þessi efni.
Kostir sólarvarnar Sante: - Náttúruleg vörn gegn UVA og UVB geislum með náttúrulegu steinefnunum Titandioxid og Zinkoxid.
- Vatnsheld
- Vörn með 15 spf eða 20 spf
- Engin skaðleg aukaefni
- Framleidd úr lífrænt ræktuðum jurtum
- Viðurkennd og prófuð af húðlæknum
- Gæðastimpluð frá Öko-test, blaði þýsku neytendasamtakanna
Njótum sólarinnar þegar hún gefst!