Fréttir

13. ágúst 2010
Heilsupistill frá Þorgrími Þráinssyni

DREKKUR RÓS DIET KÓK?

Maður lifandi hvað það er gott að borða hollt!


,,Látið fæði vera lækningu ykkar og lækninguna vera fæðið.” Þessi fleygu orð mælti Hippocrates 440 árum fyrir Krist en Hippocrates er talinn faðir læknisfræðinnar. Um 1200 árum síðar sagði Thomas Edison: ,,Læknir framtíðarinnar mun ekki vísa á nein lyf heldur vekja áhuga sjúklinga á að fyrirbyggja sjúkóma með því að hlúa að líkama okkar með réttri fæðu.”
Við erum það sem við borðum, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Hvaða rós myndi springa út og blómstra ef við nærðum hana á diet kóki og myldum snakk ofan í moldina? Hún myndi án efa visna og deyja innan tíðar. Það sama hendir okkur, en á lengri tíma. Þau okkar sem grípa í ,,sukkfæði” daglega og hlýða eingöngu kalli bragðlaukanna eiga á hættu að visna langt um aldur fram. Það fæði sem náttúran ætlar okkur er grænmeti, ávextir og fræ; lifandi, orkumikil og heilsusamleg fæða. Öflugustu dýr jarðar, allt frá górillu til fíla eru grænmetisætur.
Dr. Ann Wigmore, er upphafsmanneskja hráfæðis (lifandi næring) en hún lést árið 1994, 85 ára gömul. Þegar hún greindist með krabbamein um fimmtugt og henni var tilkynnt að hún ætti eftir 6 mánuði ólifaða sagði hún skilið við óhamingjusamt hjónaband og streituvaldandi líf. Hún sneri sér alfarið að náttúrunni, innbyrgði allt sem var grænt og hrátt. Hann blandaði því saman við fræ og korn sem hún spíraði.
Eftir eitt ár hafði Ann Wigmore náð fullum bata og hún var aftur komin með brúnt hár. Hún stundað mikla rannsóknarvinnu og fann upp hveitigrasið (sem fæst í Maður lifandi) og opnaði fyrsta heildræna heilsusetrið í Boston árið 1963. Dr. Ann Wigmore fékk ,,Women of the decade award” fyrir hugmyndir sínar á sviði krabbameins og meltingasjúkdóma á tímabilinu 1970-1980.
Ensímin eru það sem málið snýst um því þau eru lífsorkan í okkur. Við 40 gráður byrja ensímin að fjara út. Og við 48 gráður eru þau horfin. Ef við fáum engin ensím úr fæðunni göngum við í rólegum á ensímforða líkamans og þá hefst hrörnunin. Ef við gróðursetjum eplakjarna fáum við eplatré. En soðinn eplakjarni í mold skilar engu. Þannig er lífsorkan.
Otto Warburg fékk Nóbelsverðlaunin fyrir 76 árum fyrir rannsóknir sem sýndu að ástæða krabbameins væri að stærstum hluta vegna ójafnvægis á sýrustigi líkamans. Flestir eru of súrir í stað þess að vera basískir. Hvers vegna segja sumir læknar við krabbameinssjúklinga að mataræði skipti engu máli. Stress og óhamingja hækka sýrustig en andlegt jafnvægi heldur líkamanum basískum.
Flestir borða ALLAN mat, sittlítið af hverju, þótt víða sé að finna öfgar í báðar áttir. Hófsemi er lykilorðið og það að vera meðvitaður. Fólk á ekki alltaf að eltast við duttlunga bragðlaukanna heldur ígrunda hvað líkamanum er fyrir bestu. Það er ágætist regla að borða sig aldrei nema um 70% saddan og borða litlar máltíðir oft á dag í stað þess að yfirfylla líkamann tvisvar á dag. Og allir vita að vatnsdrykkja er lífsnauðsynleg. Vatn er hreinsandi, svalandi og nærandi og alltaf innan seilingar.
En það er eins með mataræðið og margt annað þegar kemur að lífsstílsbreytingum, þær krefjast sjálfsaga og viljastyrks. Það tekur ekki nema tvær til þrjár vikur að venja sig á góða siði, jafnvel þótt maður hafi ástundað ósiði árum saman. En léleg næring eyðir líkamlegri og andlegri orku. Það er stórmerkilegt að finna hvernig líkaminn gleðst yfir hollum og léttum mat. Sálin fer að syngja.

Þorgrímur Þráinsson


Heilsupistlar

Uppskrift vikunnar

Hnetusteik

Kryddin eru sett saman við olíuna ásamt ...

Nánar
Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17
Hafnarborg strandgötu 220 Hafnarfirði
Sími: 585 8720

Opnunartími:
Virka daga kl. 11-17
Fimmtudaga kl. 11-21
Laug. og Sun. kl. 12-17