Opinn hláturjógatími
Hjá Maður lifandi laugardaginn, 4.desember
Kennslan fer fram kl. 10:30 -11:30
Hláturjóga er aðferð sem indverski læknirinn Dr. Madan Kataria hefur þróað. Í hláturjóga getur hver sem er hlegið í hópi, án tilefnis, án þess að segja brandara, án húmors eða fyndni. Tilgangurinn að efla og styrkja líkama og sál. Hláturjóga er blanda af hláturæfingum og jógaöndun.
Til að kalla fram hláturinn eru notaðar ákveðnar æfingar og með augnsambandi verður hláturinn fljótt eðlilegur. Vísindalegar rannsóknir hafa sýnt að jákvæð viðbrögð líkamans eru þau sömu hvort sem hláturinn er sjálfsprottinn eða kallaður fram án tilefnis.
Ásta Valdimarsdóttir lærði hláturjóga í Noregi 2001 og hefur haldið fyrirlestra um þessa hollu líkams- og sál-rækt allar götur síðan. Auk þess hefur hún sótt mörg hláturjóganámskeið og útskrifað hláturjógaleiðbeinendur hér á Íslandi.
Kennari: Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari.
Verð: 1000 kr.
Skráning í síma 899 0223
eða Netfang: asta.valdimarsdottir@c2i.net
www.hlatur.com