Fréttir

4. september 2010
Grasalækningar og íslenskar lækningajurtir
Á námskeiðinu fjallar Anna Rósa Róbertsdóttir grasalæknir almennt um grasalækningar og íslenskar lækningajurtir. Rætt verður um hvernig grasalæknir vinnur og hvað sjúkdóma algengt er að grasalæknir fáist við.
Farið verður yfir áhrifamátt nokkurra algengra íslenskra lækningajurta sem auðvelt er fyrir leikmenn að finna og tína. Fjallað verður m.a. um aðalbláber, krækiber, fjallagrös, vallhumal, ætihvönn, maríustakk, mjaðjurt, blóðberg, birki, túnfífil, klóelftingu og haugarfa. Einnig verða gefin dæmi um einfaldar uppskriftir og fjallað um tínslu og þurrkun.

Ítarleg námskeiðsgögn innifalin.

Námskeiðið verður haldið 8. september frá 17.30 – 20.00 hjá Maður lifandi, Borgartúni 24.
Maður lifandi veitir 50% afslátt af mat í 30 mín. matarhléi og 25% afsláttur er af vörum Önnu Rósu grasalæknis.

Skráning hjá Maður lifandi á gg@madurlifandi.is
Verð 6.900 kr.

Uppskrift vikunnar

Hnetusteik

Kryddin eru sett saman við olíuna ásamt ...

Nánar
Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17
Hafnarborg strandgötu 220 Hafnarfirði
Sími: 585 8720

Opnunartími:
Virka daga kl. 11-17
Fimmtudaga kl. 11-21
Laug. og Sun. kl. 12-17