
Lífræni rauðrófusafinn frá Beutelsbacher er bæði næringarríkur og hreinsandi. 1-2 glös á morgnana kemur jafnvægi á meltinguna.
Kristín Kristjánsdóttir hómopati hefur mikla trú á rauðrófum og báðum við hana að útskýra það nánar: „Rauðrófur eru ein af ofurfæðutegundunum þær eru mjög hollar og innihalda fjölmörg mikilvæg vítamín og steinefni, fullt af andoxunarefnum og amínósýrum. Rauðrófur eru mjög hreinsandi. Þær hressa lifrina við og koma hægðum í lag. Rauðrófur hafa verið notaðar gegn blóðleysi, vegna þess að þau innihalda mikið magn af B-vítamínum og þá sérstaklega fólín. Rauðrófur innihalda náttúrulega virka litarefnið betacyanin, sem talið er vernda okkur fyrir krabbameini. Rauðrófur eru frábærar til að búa til detox safa og þá má leika sér alveg eins og maður vill.
Mér finnst best að fá mér glas af hreinum rauðrófusafa á hverjum morgni en margir blanda út í hann t.d gulrótarsafa, engifer eða eplum. Rauðrófusafi er ótrúlega ódýr miðað við það sem hann gefur okkur svo það eru góð kaup að skella sér á eina flösku eða þá að pressa rauðrófur fyrir þá sem eru með safapressu."