
Auður Ingibjörg Konráðsdóttir sýnir fram á hversu einfalt, fljótlegt og
hagkvæmt það er að matreiða gómsæta rétti úr heilsusamlegu hráefni.
Heilsunámskeið Auðar hafa vakið mikla lukku og nú verður eitt slíkt
haldið hér í LIFANDI markað. Námskeiðið verður í formi fyrirlesturs og
sýnikennslu. Komið með gleði í hjarta og hungur í maga.
Auður gaf nýverið út bókina
Heilsudrykkir sem skaust beint inn á metsölulista hjá Hagkaup og seldist upp hjá útgáfunni. Hún er einnig með eigin heimasíðu
(heilsukokkur.com)
sem vakið hefur mikla athygli enda kjörin vettvangur fyrir þá sem vilja
tileinka sér betra mataræði. Auður hefur getið sér gott orð sem
heilsukokkur og er lærður matreiðslumaður og bakari með áratuga reynslu
að baki í faginu, einkum er snýr að matreiðslu heilsurétta.
Leiðbeinandi: Auður Ingibjörg Konráðsdóttir
Tími: Miðvikudaginn 18. janúar kl. 18:00 - 20:00
Staður: LIFANDI markaður, Borgartúni 24
Skráning: heilsukokkur@heilsukokkur.com eða í síma 823-8000
Verð: 4.500 kr.