Fréttir

18. janúar 2012
Vinsæll veitingastaður
Við höfum tekið eftir því veitingastaðurinn okkar nýtur mikilla vinsælda nú í byrjun janúar. Vafalaust eru flestir ánægðir að fá loksins hollan en jafnframt bragðgóðan mat. Réttir dagsins eru breytilegir og boðið er upp á grænmetisrétti annars vegar og fisk- eða kjúklingarétti hins vegar. Með rétti dagsins er svo hægt að velja á milli þriggja tegunda af litríkum salötum. Allur matur er eldaður frá grunni úr heilnæmum og að miklu leyti lífrænum hráefnum. Við leggjum mikla áherslu á fyrsta flokks hráefni enda er fiskurinn okkar ávallt ferskur - og ólíkt mörgum þá tryggjum við að kjúklingurinn sé ósprautaður. Margir af okkar viðskiptavinum vilja setjast niður á veitingastaðnum eitt augnablik og gæða sér á gómsætri hráköku sem að sjálfsögðu er í hollari en venjulegar kökur. Svo má ekki gleyma okkar vinsælu þeytingum og söfum sem eru stútfullir af næringu og vítamínum. Allt sem við bjóðum upp á verður að innihalda eingöngu heilnæm hráefni sem stuðla að góðri heilsu og vellíðan.

Verði þér að góðu og lifðu vel.

Uppskrift vikunnar

Möndlumjólk

Leggið möndlurnar í bleyti í einn sólarh...

Nánar
Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17
Hafnarborg strandgötu 220 Hafnarfirði
Sími: 585 8720

Opnunartími:
Virka daga kl. 11-17
Fimmtudaga kl. 11-21
Laug. og Sun. kl. 12-17