
Kristalsjávarsalt sem framleitt er í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp fæst núna í verslunum LIFANDI markaðar. Þetta eru stórar og stökkar saltflögur sem draga fram fleiri og ríkari bragðtóna við matargerð.
Saltið eru unnið með aldagamalli íslenskri aðferð sem stunduð var í Reykjanesi við Ísafjarðardúp á 18. öld. Sjór úr djúpinu er eimaður með því að leiða heitt hveravatn undir saltpönnu og eftir verður hrein afurð, náttúrulegt og umhverfisvænt kristalsjávarsalt.
Saltararnir í Reykjanesi verka saltið af alúð, metnaði og skilningi á því að salt er ómissandi þáttur í hverri einstakri matarupplifun.
Verð 545 kr.