
Námskeiðið Betri næring - betra líf sem átti að vera haldið í Borgartúni 24 verður haldið í Hafnarborg, Strandgötu 34, fimmtudaginn 2. febrúar. Við viljum biðjast velvirðingar á þessari röskun og vonum að allir taki því vel.
Námskeiðin með Kolbrúnu grasalæknir hafa ávallt verið mjög vinsæl og því er betra að skrá sig tímanlega. Fyrirlestur hennar er sérstaklega hannaður fyrir þá sem hafa áhuga á betri líðan, bættu heilsufari og ferskari sýn á lífið.
Fyrirlesturinn heitir, „Betri næring - betra líf“ og er byggður á eftirfarandi hátt:
-
Farið verður ýtarlega yfir uppbyggingu bakteríuflórunnar í líkamanum í heild sinni.
- Hvernig meltingarvegurinn virkar og hvernig taugakerfið og ónæmiskerfið tengist meltingarveginum.
-
Stiklað á stóru í gegnum fjóra helstu hluta bókarinnar „Betri næring - betra líf“
Fjórir helstu áfangar bókarinnar eru:
· Hreinsun
· Hreinsun í gegnum mataræðið
· Uppbygging og næring
· Varanleg lífsgæði í gegnum breytta lífshætti
Leiðbeinandi: Kolbrún Björnsdóttir Grasalæknir
Tími: Fimmtudaginn 2. febrúar kl. 18:00 - 19:30
Staður: LIFANDI markaður, Hafnarborg
Skráning: namskeid@lifandimarkadur.is eða í síma 585 8700
Verð: 2.900 kr.