Gildi Lifandi Markaðar

Fyrirtækjamenning LIFANDI markaðar einkennist af áhuga á að stuðla að því að viðskiptavinir okkar lifi vel. Til að viðhalda og efla þann góða starfsanda skilgreindum við þrjú gildi til að hafa að leiðarljósi í okkar daglega starfi:

HEILBRIGÐI
Tilgangurinn með starfsemi okkar er að auka heilbrigði fólks og um leið náttúrunnar því vörurnar okkar eru almennt séð framleiddar á umhverfisvænan hátt. Allt sem við bjóðum upp á verður að innihalda eingöngu heilnæm hráefni sem stuðla að góðri heilsu og vellíðan.

HEILINDI
Við höfum heilindi að leiðarljósi í öllu sem við gerum - bæði í samskiptum og við ákvarðanatöku. Við stjórnumst af langtímaárangri en ekki skammtímagróða. Við erum í þessu af heilum hug og því ásetjum við okkur að vaxa og dafna með því að starfa af heilindum.

HAGSÝNI
Við sýnum ráðdeild starfi okkar. Leggjum áherslu á að nota og henda rétt - hámarka nýtni og lágmarka sóun. Leitum stöðugt að umhverfisvænni leiðum. Höldum kostnaði í lágmarki með árangursríkum samskiptum, vönduðum undirbúningi og góðri skipulagningu.

Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17