Ertu með ofnæmi eða óþol?

Auður Ingibjörg Konráðsdóttir kennir hvernig er hægt að skipta út ofnæmisvaldandi hráefni og matreiða gómsæta heilsurétti. Námskeiðið verður í formi fyrirlesturs og sýnikennslu. Komið með gleði í hjarta og hungur í maga. Innifalið er uppskriftamappa og sitthvað gott að smakka. Nánari upplýsingar og skráning í síma 823 8000 og á heilsukokkur@heilsukokkur.com

Auður gaf nýverið út bókina Heilsudrykkir sem skaust beint inn á metsölulista hjá Hagkaup og seldist upp hjá útgáfunni. Hún er einnig með eigin heimasíðu (heilsukokkur.com) sem vakið hefur mikla athygli enda kjörin vettvangur fyrir þá sem vilja tileinka sér betra mataræði. Auður hefur getið sér gott orð sem heilsukokkur og er lærður matreiðslumaður og bakari með áratuga reynslu að baki í faginu, einkum er snýr að matreiðslu heilsurétta.


Leiðbeinandi: Auður Ingibjörg Konráðsdóttir
Tími: Miðvikudaginn 18. janúar kl. 18:00 - 20:00
Staður: LIFANDI markaður,  Borgartúni 24
Skráning: heilsukokkur@heilsukokkur.com eða í síma 823-8000
Verð: 4.500 kr.


Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17