Hollusta fyrir húð og hár

Þú situr inni á baði, ert að lita á þér hárið heima, svíður í hársvörðinn og klæjar í nefið undan lyktinni. Þetta getur varla verið hollt hugsarðu með þér og teygir þig í pakkann utan af hárlitunarefnunum. Óskiljanleg innihaldslýsing og þú ert engu nær. Klárar að skola litinn úr hárinu. Æ, hvað með það þó þetta sé óhollt, hárið er rosalega flott! Flest okkar hugsa á þessa leið, allavega á meðan við erum hraust, með sterka húð og þurfum ekki að hugsa um ofnæmi eða önnur heilsuvandamál. En við mættum hugsa betur um hvað við setjum í hárið á okkur og á húðina sjálfa.
Húðin er stærsta líffæri mannsins og hefur ótrúlega hæfileika til að hleypa efnum inn í líkamann. Við þekkjum virkni einstakra lyfjaplástra s.s. sjóveiki-, nikótín-, hormónaplástra o.fl.. Það segir því sig sjálft að þau krem og efni sem eru sett á húðina komast inn í líkamann á endanum.

En hvað er til ráða ef maður vill passa heilsuna og nota náttúrulegar snyrtivörur? Eitt ráðið er að nýta hráefni úr eldhússkápnum til fegrunar en það getur verið flókið til hárlitunar. Einnig er hægt að nýta sér að til eru náttúrulegar snyrtivörur. Logona eru þýskar hár- og húðsnyrtivörur sem eru búnar til úr lífrænt ræktuðum jurtum og alveg lausar við aukaefni, s.s. paraben, peroxide og ammoníak Í hárlitunarlínunni frá Logona eru margir litir í boði, liturinn er einfaldur í notkun og þekur gráu hárin vel. M.a.s. lyktin er af jurtum og án allra kemískra efna.
Hárvörurnar frá Logona henta vel fyrir fólk með viðkvæma húð og fyrir þau okkar sem viljum hugsa jafn vel um það sem við setjum utan á líkamann og það sem við borðum.