Íslenskar náttúrulegar húðvörur frá Urtasmiðjunni
Íslenskar náttúrulegar húðvörur frá Urtasmiðjunni Í Maður lifandi verslununum fást íslensku náttúrulegu húðvörurnar SÓLA frá fyrirtækinu Urtasmiðjunni á Svalbarðsströnd við Eyjafjörð. Eigandi og stofnandi þess er Gígja Kjartansdóttir.
Urtasmiðjan hefur síðastliðin 15 ár framleitt húðvörur og snyrtivörur úr íslenskum heilsujurtum, sem um aldir hafa verið þekktar fyrir heilandi og græðandi áhrifamátt sinn við ýmsum húðkvillum, verkjum og bólgum.
Jurtirnar eru tíndar þar sem þær vaxa villtar og kraftmiklar í sínu náttúrulega og hreina umhverfi á norðlenskum heiðum og dölum t.d. fjallagrös, blóðberg, vallhumall, rauðsmári, maríustakkur, fjólur o.fl. o.fl.
Í framleiðsluna eru auk jurtanna einungis notað náttúruleg tog lífrænt hráefni t.d. lífrænt og ilmandi kókossmjör og bývax og Omega jurtaolíur sem eru ekki síður hollar á húðina en til inntöku og eru sérlega nærandi og uppbyggjandi fyrir hana. Í allri vörulínunni er náttúrulegt E vitamín, sem er þráavörn, andoxunarefni.
Öll vörulína Urtasmiðjunnar er seld undir vörumerkinu SÓLA. Meðal vörutegunda sem fást í Maður lifandi verslununum eru:
- Andlitskrem, Rósakrem unnið úr rósaberjum,
- Morgunfrúarkrem með mýkjandi Morgunfrúarolíu,
- Fjallagrasakrem með ísl. fjallagrösum,
- Djúpnærandi Silki andlitsolía,
- Nærandi Handkrem,
- Mýkjandi og róandi Fótaáburður,
- Kröftug Vöðvaolía/gigtarolía á vöðvabólgu, liðverki og sinadrátt, sem inniheldur m.a. blóðberg, eini og vallhumal,
- Græðismyrsl á sár, bruna og ýmis húðvandamál sem hefur fyrir löngu sannað sig sem áhrifaríkur græðiáburður og oft nefndur "Græna undrið
Allar upplýsingar um framleiðslu Urtasmiðjunnar og vöruval er að finna á heimasíðu Urtasmiðjunnar urtasmidjan.is |