Logona og Sante - Í fararbroddi í framleiðslu á snyrtivörum framtíðarinnar
Ótalmargt bendir til að það sé jafnmikið atriði hvað fólk ber á sig og hvað það borðar því hættuleg efni eiga greiða leið inn í líkamann í gegnum húðina. Komið hafa fram upplýsingar um að í húð- og snyrtivörum séu oft varasöm og jafnvel hættuleg efni sem geta valdið ofnæmisviðbrögðum og eru jafnvel krabbameinsvaldandi og hormónaraskandi. Þessi efni geta auðveldlega

smogið inn í blóðrásina í gegnum húðina og valdið ýmis konar kvillum. Vitað er að mörg aukaefni setjast að í líkamsvefjum og eyðast ekki.
Af hverju áttu að nota Logona og Sante hár- og húðsnyrtivörur?
- Þær eru framleiddar úr lífrænt ræktuðum jurtum úr bestu fáanlegu hráefnum
- Í þeim eru engin skaðleg kemísk efni
- Af þeim er mildur jurtailmur
- Nákvæm innihaldslýsing er á umbúðunum
- Þær eru viðurkenndar og prófaðar af húðsjúkdómafræðingum
- Þær hafa staðist gæðakannanir á neysluvörum m.a. hjá Öko-test
- Fyrirtækin setja umhverfismál á oddinn ásamt sanngirni og heiðarleika gagnvart samstarfsmönnum, samfélginu og viðskiptavinum.
Sýndu fyrirhyggju. Vertu á varðbergi gagnvart því hvað er í snyrtivörunum þínum því ekki er allt sem sýnist!