Sólarvörn án aukaefna

Húðin er stærsta líffæri líkamans og hefur undraverða hæfileika. Flest okkar viljum vera með slétta, fallega og hraustlega húð. Sólarbrúnka gefur hraustlegan blæ á húðina en brunnin húð með sólarexemi er ekki eftirsóknarverð! Notum því sólarvörn en pössum okkur á því hvað er í kremunum sem við setjum á okkur.

Skaðleg áhrif sólarljóss eru löngu kunn en færri þekkja til skaðlegra efna sem við notum til að verjast blessaðri sólinni. Húðin hefur þann sérstaka hæfileika að hleypa efnum inn í líkamann. Sólvarnarefni hafa mælst í þvagi nokkrum klst eftir að hún var borin á húð.

Environmental Health Perspectives birti vísindagrein um rannsókn á sex sólarvarnarefnum. Í þeirri rannsókn kom í ljós að þrjú af efnunum: Octyl Methoxycinnamate, Oxybenzone og 4-Methylbenzylidine Camphor (4-MBC), höfðu hormónatruflandi áhrif í tveimur ólíkum tilraunum og gætu því verið skaðleg heilsu fólks. Efnið 4-MBC reyndist mun virkara en hin tvö efnin. Sólarvörnin frá Sante inniheldur ekki þessi efni.

Kostir sólarvarnar Sante:
  • Náttúruleg vörn gegn UVA og UVB geislum með náttúrulegu steinefnunum Titandioxid og Zinkoxid.
  • Vatnsheld
  • Vörn með 15 spf eða 20 spf
  • Engin skaðleg aukaefni
  • Framleidd úr lífrænt ræktuðum jurtum
  • Viðurkennd og prófuð af húðlæknum
  • Gæðastimpluð frá Öko-test, blaði þýsku neytendasamtakanna

Njótum sólarinnar þegar hún gefst!
Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17