
Hrísmjólk er tilvalin fyrir fólk með mjólkuróþol, soya óþol, glúten óþol og alla sem vilja huga að góðu mataræði. Hrísmjólkin er fitusnauð og án kólesteróls eins og öll fæða úr jurtaríkinu. Hrísmjólkin frá Rice&rice fæst í 4 tegundum, hefðbundin, með kalki og með vanillu- eða möndlubragði. Litlu fernurnar eru frábærar til að grípa með sér í vinnuna eða í nestispakkann fyrir börnin.