Brjóstaþreifari

LIFANDI markaður kynnir á markaðinn brjóstaþreifarann frá LivAid sem er ætlaður til þess að auðvelda konum sjálfskoðun brjósta og hvetja þær til að skoða þau reglulega. Ein af hverjum tólf konum greinist með brjóstkrabbamein og aukningin í tíðni brjóstakrabbameins hjá konum á aldrinum 30-40 ára hefur t.d. aukist um 57% í Bretlandi á síðustu 5 árum.

Olivia Newton John er forsvarsmaður LivAid samtakanna sem berjast gegn brjóstakrabbameini um allan heim. Sjálf greindist hún með brjóstakrabbamein og tók það hana nokkur ár að sigrast á því. Frá því hefur hún verð ötull liðsmaður í baráttunni gegn brjóstakrabameini og hvatt konur til sjálfsskoðunar brjósta.

Brjóstaþreifarinn er hringlaga gelpoki sem á að leggja yfir brjóstið meðan það er þreifað. Hann auðveldar sjálfskoðunina þar sem hann minnkar viðnámið sem annars er við húðina og gerir fingur næmari fyrir hnútum í brjóstunum. Mætti líkja honum við stækkunargler fyrir fingurnar. Pokinn er lítill og léttur og auðvelt er að stinga honum í veskið eða í náttborðsskúffuna, en honum fylgir lítill flauelispoki sem hægt er að geyma hann í. Einnig fylgir með dagbók til að skrá niðurstöður skoðunarinnar. Konur þurfa þó eftir sem áður að fara í reglubundna brjóstaskoðun hjá Krabbameinsfélaginu eða læknum.

Brjóstaþreifarinn kostar kr. 4.900 og fæst í verslun Maður lifandi og á www.femin.is      

Myndband um tilgang sjálfsskoðunar á brjóstum

Myndband um LivAid brjóstaþreifarann og notkun hans

Fræðslurit Krabbameinsfélagsins um brjóstakrabbamein og sjálfsskoðun (pdf)

Borgartúni 24 105 Reykjavík
Sími: 585 8700

Opnunartími:
Virka daga kl. 9-20
Laugardaga kl. 10-17
Hæðasmára 6 201 Kópavogur
Sími: 585 8710

Opnunartími:
Virka daga kl. 10-20
Laugardaga kl. 11-17