Fosfoser Memory - töflur sem vinna gegn minnistapi

Hægt er að bæta minnið og sporna gegn minnistapi með því að taka fæðubótarefni fyrir heilann. Fosfoser memory er ísraelskt náttúrulyf sem getur unnið gegn gleymsku og minnistapi. Rannsóknir sýna að skortur á vissu efni í heilafrumum getur valdið gleymsku og hægt er að vinna gegn þessari þróun með því að bæta heilanum upp þennan skort. Það má til dæmis gera með því að nota efnið Fosfoser Memeory, sem er unnið úr sojabaunum og er fyrirtaks fæðubótarefni fyrir heilann. Virkni Fosfoser Memory hefur verið rannsökuð hjá fólki með minnissjúkdóma og er árangurinn góður. Til eru dæmi um að alzheimersjúklingar hafi sýnt töluverðar framfarir og margt eldra fólk tekur efnið reglulega. Yngra fólk getur einnig notið góðs af Fosfoser Memory, sem bætir skammtímaminnið, en þó er ekki ráðlagt að byrja að taka efnið fyrr en erfiðleikar vegna minnistaps fara að gera vart við sig.