Angelica er heilsubót úr fortíðinni en ætihvönn eða Angelica archangelica var á öldum áður vinsæl og þekkt lækningajurt. Hún eykur þrek og kjark, framtakssemi og vellíðan, dregur úr streitu og vægu þunglyndi, styrkir forvarnir gegn kvefi og flensu og er góð fyrir magann og meltinguna.
SagaPro er fyrir miðaldra og eldri menn sem hafa góðkynja stækkun á blöðruhálskirtli. SagaPro dregur úr tíðum þvaglátum á nóttu, fækkar þeim úr 3-5 á nóttu í eina eða jafnvel enga salernisferð á nóttunni.
Voxis hálsbrjóstsykur er hentugur til að draga úr særindum og slími í hálsi, gagnlegur þegar hætta er á kvefi og/eða flensu og inniheldur veiruvirk efni sem geta hindrað fjölgun á kvefveirum og fleiri veirum.
Ætihvönn og ginseng eru skyldar. Ætihvönn er stór og vel þekkt fyrir sérstæða sveipi og aldin og fyrir fjölbreytt ilmefni og bragðefni sem eru notuð sem krydd. Ætihvönnin var einnig mikilsmetin lækningajurt. Talið er að ætihvönn hafi verið ein af fyrstu plöntunum til að nema land á Íslandi eftir ísöld. Hún á því 8.000 til 9.000 ára sögu hér á landi.
Sjá nánari upplýsingar á
http://www.sagamedica.com/